Munum gera allt til að forðast stigmögnun

Íran gerir árás á Ísrael | 15. apríl 2024

Munum gera allt til að forðast stigmögnun

Emmanuel Macron, forseti Frakklands, sagði að frönsk stjórnvöld myndu gera allt sem í sínu valdi stæði til að forðast stigmögnun átaka í Mið-Austurlöndunum eftir fordæmalausa árás Írans á Ísrael um helgina.

Munum gera allt til að forðast stigmögnun

Íran gerir árás á Ísrael | 15. apríl 2024

Emmanuel Macron, forseti Frakklands.
Emmanuel Macron, forseti Frakklands. AFP/Lewis Joly

Emm­anu­el Macron, for­seti Frakk­lands, sagði að frönsk stjórn­völd myndu gera allt sem í sínu valdi stæði til að forðast stig­mögn­un átaka í Mið-Aust­ur­lönd­un­um eft­ir for­dæma­lausa árás Írans á Ísra­el um helg­ina.

„Við mun­um gera allt til að forðast stór­slys, það er að segja stig­mögn­un,“ sagði hann við BF­MTV-sjón­varps­stöðina, og bætti við að fransk­ar orr­ustuþotur hefðu aðstoðað við að verja loft­helgi Jórdan­íu.

„Í nokk­ur ár höf­um við verið með flug­stöð í Jórdan­íu til að berj­ast gegn hryðju­verk­um,“ sagði for­set­inn og hélt áfram: „Loft­helg­in var rof­in. Við send­um þot­urn­ar af stað og þær stöðvuðu það sem þurfti að stöðva.“

Stephane Sejour­ne, ut­an­rík­is­ráðherra Frakk­lands, hef­ur kallað sendi­herra Írans á fund í dag til að tjá hon­um af­stöðu Frakka.

mbl.is