14 særðust í árás Hisbollah

Íran gerir árás á Ísrael | 17. apríl 2024

14 særðust í árás Hisbollah

Líbönsku hryðjuverkasamtökin Hisbollah réðust í dag á herstöð ísraelska hersins innan landamæra Ísraels með stýriflaugum og árásardrónum. 14 Ísraelsmenn særðust í árásinni.

14 særðust í árás Hisbollah

Íran gerir árás á Ísrael | 17. apríl 2024

Aukin spenna er á landamærum Ísraels og Líbanon í kjölfar …
Aukin spenna er á landamærum Ísraels og Líbanon í kjölfar árásar Írans á Ísrael, en klerkastjórnin styður við Hisbollah. AFP/Kawnat Haju

Líb­önsku hryðju­verka­sam­tök­in His­bollah réðust í dag á her­stöð ísra­elska hers­ins inn­an landa­mæra Ísra­els með stýrif­laug­um og árás­ar­drón­um. 14 Ísra­els­menn særðust í árás­inni.

Líb­önsku hryðju­verka­sam­tök­in His­bollah réðust í dag á her­stöð ísra­elska hers­ins inn­an landa­mæra Ísra­els með stýrif­laug­um og árás­ar­drón­um. 14 Ísra­els­menn særðust í árás­inni.

Þrátt fyr­ir að His­bollah og Ísra­els­menn hafi skipst á skot­um síðustu mánuði nær dag­lega þá hef­ur auk­in spenna verið á landa­mær­um Ísra­els og Líb­anon í kjöl­far árás­ar Írans á Ísra­el um helg­ina.

Hefnd­arárás­ir beggja aðila 

Síðustu þrjá daga hafa Ísra­els­menn særst dag­lega í árás­um His­bollah og sam­kvæmt ísra­elska hern­um þá særðust 14 manns í árás­inni í dag. His­bollah seg­ir að þessi til­tekna árás hafi verið hefnd­arárás eft­ir að Ísra­el felldi í gær tvo leiðtoga í His­bollah ásamt öðrum His­bollah-liða.

Sú árás Ísra­els­manna var einnig sögð hefnd­arárás fyr­ir árás His­bollah degi á und­an sem særði þrjá Ísra­ela.

Sam­kvæmt AFP-frétta­veit­unni þá hafa um 300 His­bollah-liðar verið felld­ir frá 7. októ­ber og um 70 al­menn­ir borg­ar­ar í Líb­anon. Þá hafa um tíu ísra­elsk­ir her­menn verið felld­ir og átta sak­laus­ir borg­ar­ar.

mbl.is