Hættu við hefndarárás

Íran gerir árás á Ísrael | 18. apríl 2024

Hættu við hefndarárás

Ísraelsk stjórnvöld íhuguðu hefndarárás á Írani í kjölfar árásar þeirra á Ísrael um liðna helgi en hættu svo við.

Hættu við hefndarárás

Íran gerir árás á Ísrael | 18. apríl 2024

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels.
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. AFP/Leo Correa

Ísra­elsk stjórn­völd íhuguðu hefnd­arárás á Írani í kjöl­far árás­ar þeirra á Ísra­el um liðna helgi en hættu svo við.

Ísra­elsk stjórn­völd íhuguðu hefnd­arárás á Írani í kjöl­far árás­ar þeirra á Ísra­el um liðna helgi en hættu svo við.

Íran beindi 300 drón­um og flug­skeyt­um að Ísra­el um helg­ina. Loft­varna­kerfi Ísra­els komu þó í veg fyr­ir um­fangs­mikið tjón. Alls særðust tólf í árás­inni en eng­inn féll.

Ræddi við Biden

Benja­mín Net­anja­hú, for­sæt­is­ráðherra Ísra­els, hef­ur heitið því að hefna árás­ar­inn­ar. Leiðtog­ar víða um heim hafa þó hvatt til still­ing­ar, þar á meðal Joe Biden Banda­ríkja­for­seti, helsti bandamaður Ísra­ela.

Ísra­elski miðill­inn Kan greindi frá því að Net­anja­hú hefði látið af áform­um um hefnd­arárás eft­ir að hafa rætt við Biden.

Hátt­sett­ur ísra­elsk­ur emb­ætt­ismaður ræddi við Kan und­ir nafn­leynd. Hann sagði að Ísra­el­ar myndu eft­ir sem áður svara árás­inni, það yrði þó gert með öðrum hætti en upp­runa­lega var áformað.

ABC greindi einnig frá því að Ísra­el hefði skipu­lagt hefnd­arárás en síðar látið af þeim áform­um. 

mbl.is