Myndband af tónleikum Laufeyjar vekur reiði á TikTok

Laufey | 22. apríl 2024

Myndband af tónleikum Laufeyjar vekur reiði á TikTok

Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir lenti í leiðinlegu atviki á tónleikum sínum í Dallas í Texas á dögunum sem hefur vakið mikla reiði á samfélagsmiðlum. 

Myndband af tónleikum Laufeyjar vekur reiði á TikTok

Laufey | 22. apríl 2024

Laufey Lín Jónsdóttir lenti í leiðinlegu atviki á tónleikum sínum …
Laufey Lín Jónsdóttir lenti í leiðinlegu atviki á tónleikum sínum í Dallas í Texas á dögunum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tón­list­ar­kon­an Lauf­ey Lín Jóns­dótt­ir lenti í leiðin­legu at­viki á tón­leik­um sín­um í Dallas í Texas á dög­un­um sem hef­ur vakið mikla reiði á sam­fé­lags­miðlum. 

Tón­list­ar­kon­an Lauf­ey Lín Jóns­dótt­ir lenti í leiðin­legu at­viki á tón­leik­um sín­um í Dallas í Texas á dög­un­um sem hef­ur vakið mikla reiði á sam­fé­lags­miðlum. 

Lauf­ey er á sann­kallaðri sig­ur­för um heim­inn en hún er stödd á tón­leika­ferðalagi um þess­ar mund­ir og spilaði á tvenn­um tón­leik­um í Dallas í síðustu viku. Þar lenti hún í leiðin­legu at­viki þar sem hóp­ur áhorf­enda byrjaði að öskra gríðarlega hátt í miðju lagi.

„Mér leið svo illa fyr­ir hönd Lauf­eyj­ar“

Mynd­band frá at­vik­inu birt­ist í kjöl­farið á TikT­ok þar sem áhorf­andi gagn­rýndi hóp­inn sem byrjaði að öskra og sagði hann hafa skemmt fyr­ir öðrum gest­um sem voru mætt­ir til þess að hlusta á Lauf­eyju syngja.

„Það má syngja með en það eru mörk sem þú get­ur farið yfir þar sem þú ert far­in að skemma fyr­ir öll­um öðrum í saln­um. Er svona erfitt að vera ekki veru­lega dóna­leg­ur??“ skrifaði hún við mynd­bandið þar sem Lauf­ey sést spila á pí­anó og syngja lagið Promise þegar öskrin byrja. 

Mynd­bandið hef­ur vakið mikla at­hygli á sam­fé­lags­miðlum og á aðeins rúm­um sól­ar­hring hef­ur það fengið yfir 8,4 millj­ón­ir áhorfa. Þá hef­ur fjöldi tón­leika­gesta sem voru viðstadd­ir þegar at­vikið átti sér stað tjáð sig í at­huga­semd­um, en það er greini­legt að fólk var veru­lega ósátt við hóp­inn. 

„Ég var þarna og mér leið svo illa fyr­ir hönd Lauf­eyj­ar, hún virt­ist svo von­svik­in,“ skrifaði einn tón­leika­gest­ur á meðan ann­ar skrifaði: „Ég sat ná­lægt sum­um af þess­um stelp­um sem öskruðu ofboðslega hátt alla tón­leik­ana, svo hræðilega vand­ræðal­egt.“

„Ég var þarna með syst­ur minni. Við vor­um báðar svo pirraðar ... eng­um finnst þetta fyndið,“ bætti ann­ar not­andi við, og enn ann­ar skrifaði: „Ég skil ekki af hverju fólk held­ur því fram að ef það hafi borgað fyr­ir miða þá megi það eyðileggja upp­lif­un­ina fyr­ir öll­um öðrum.“

mbl.is