Laufey lítt hrifin af lakkrís

Laufey | 1. maí 2024

Laufey lítt hrifin af lakkrís

Tónlistarkonan Laufey er lítt hrifin af lakkrís, en gefur harðfiski hæstu einkunn í nýju myndskeiði á samfélagsmiðlinum Tiktok. 

Laufey lítt hrifin af lakkrís

Laufey | 1. maí 2024

Laufey hélt þrenna tónleika í Hörpu í mars.
Laufey hélt þrenna tónleika í Hörpu í mars. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tón­list­ar­kon­an Lauf­ey er lítt hrif­in af lakk­rís, en gef­ur harðfiski hæstu ein­kunn í nýju mynd­skeiði á sam­fé­lags­miðlin­um Tikt­ok. 

Tón­list­ar­kon­an Lauf­ey er lítt hrif­in af lakk­rís, en gef­ur harðfiski hæstu ein­kunn í nýju mynd­skeiði á sam­fé­lags­miðlin­um Tikt­ok. 

Í mynd­skeiðinu, sem banda­ríski áhrifa­vald­ur­inn Shan Rizw­an birti, prufa þau alls kon­ar ís­lenskt góðgæti.

Mynd­skeiðið er greini­lega tekið upp í Hörpu en Lauf­ey hélt þrenna tón­leika í Eld­borg í mars. 

Meðal ann­ars prufa þau Þrista, Lindu buff, harðfisk og flat­kök­ur með osti. 

Lauf­ey seg­ir að ein­hverra hluta vegna var á boðstóln­um nammi sem hún sé al­mennt ekki hrif­in af. Hún gef­ur hins veg­ar harðfiskn­um 10 í ein­kunn. 

mbl.is