Svona eru matarvenjur Jóns

Forsetakosningar 2024 | 8. maí 2024

Svona eru matarvenjur Jóns

Jón Gnarr leik­ari, listamaður, grín­isti og for­setafram­bjóðandi, er viðmæl­andi mat­ar­vefs mbl.is að þessu sinni. Hann elskar að elda mat og vill helst vera með norðurevrópskan heimilismat. Hann vill hafa matinn sinn sterkan, en þjóðlegan. Hann er þó ekki hræddur við að prófa nýja hluti.

Svona eru matarvenjur Jóns

Forsetakosningar 2024 | 8. maí 2024

Jón Gnarr upplýsir lesendur matarvefsins um matarvenjur sínar og siði.
Jón Gnarr upplýsir lesendur matarvefsins um matarvenjur sínar og siði. Ljósmynd/Jón Gnarr

Jón Gnarr leik­ari, listamaður, grín­isti og for­setafram­bjóðandi, er viðmæl­andi mat­ar­vefs mbl.is að þessu sinni. Hann elskar að elda mat og vill helst vera með norðurevrópskan heimilismat. Hann vill hafa matinn sinn sterkan, en þjóðlegan. Hann er þó ekki hræddur við að prófa nýja hluti.

Jón Gnarr leik­ari, listamaður, grín­isti og for­setafram­bjóðandi, er viðmæl­andi mat­ar­vefs mbl.is að þessu sinni. Hann elskar að elda mat og vill helst vera með norðurevrópskan heimilismat. Hann vill hafa matinn sinn sterkan, en þjóðlegan. Hann er þó ekki hræddur við að prófa nýja hluti.

„Mín uppáhaldsmatarmenning er norðurevrópsk. Norðurevrópskur heiðarlegur heimilismatur er stórkostlegur að njóta,“ segir Jón og bætir við að hann sé líka einstaklega hrifinn af súrkáli.

Hann svarar hér nokkrum laufléttum spurningum um matarvenjur sínar og siði.

Hvað færðu þér í morgunmat? 

„Hafragraut með skyri sem kallaðist einu sinni hræringur.“

Borðar þú oft á milli mála og hvað þá helst?

„Nei, yfirleitt ekki. Ef mig vantar orku þá fæ ég mér orkustykki.“

Finnst þér ómissandi að borða hádegisverð?

„Nei, ég er meiri morgunverðarmaður. Yfirleitt er ég nokkuð saddur í hádeginu.“

Hvað áttu alltaf til í ísskápnum?

„Skyr og epli.“

Fer á Múlakaffi þegar hann ætlar að gera vel sig

Þegar þú ætlar að gera vel við þig í mat og drykk og velur veitingastað til að fara á hvert ferðu?

„Múlakaffi. Mér finnst það æðislegur staður. Maturinn og stemningin. Þar höldum við Sigurjón yfirleitt alla okkar vinnufundi.“

Er einhver veitingastaður úti í heimi sem er á „bucket-listanum“ yfir þá staði sem þú verður að heimsækja?

„Það er æðislegur staður í Kaupmannahöfn sem heitir Det lille Apotek. Það er algjörlega frábær staður og mig langar að smakka þar elsta réttinn sem mér skilst að sé frá 17. öld.“

Hvað vilt þú á pítsuna þína?

„Ég vil pepperóní og íslenskan eldpipar.“ 

Kótelettur í raspi 

Uppáhaldsrétturinn þinn?

„Kótelettur í raspi með grænum baunum og súrkáli.“

Hvort velur þú kartöflur eða salat á diskinn þinn?

„Bæði.“ 

Hvort finnst þér skemmtilegra að baka eða matreiða?

„Matreiða. Mér finnst rosalega gaman að elda mat.“

mbl.is