Að flytja á Álftanes var skrifað í skýin

Raddir Grindvíkinga | 14. maí 2024

Að flytja á Álftanes var skrifað í skýin

Talsverður hópur fólks úr Grindavík hefur sett sig niður á Álftanesi. Þar hafa verktakar í talsverðum mæli byggt íbúðir sem voru komnar á söluskrá – og voru fljótar að seljast. „Álftanes, þetta úthverfi Garðabæjar, er kannski ekki svo ýkja ólíkt Grindavík þegar allt kemur til alls. Að minnsta kosti virðist það henta okkur vel, svona við allra fyrstu kynni,“ segir Grindvíkingurinn Hermann Þ. Waldorff. Í gær voru þau Dóra Birna Jónsdóttir kona hans að koma sér fyrir í íbúð í fjölbýlishúsi við Lambamýri.

Að flytja á Álftanes var skrifað í skýin

Raddir Grindvíkinga | 14. maí 2024

Hermann og Dóra Birna í nýrri íbúð sinni á Álftanesi. …
Hermann og Dóra Birna í nýrri íbúð sinni á Álftanesi. Kaffipása í flutningatörninni var góð, því ætíð hressir sopinn er gjarnan sagt. mbl.is/Sigurður Bogi

Tals­verður hóp­ur fólks úr Grinda­vík hef­ur sett sig niður á Álfta­nesi. Þar hafa verk­tak­ar í tals­verðum mæli byggt íbúðir sem voru komn­ar á sölu­skrá – og voru fljót­ar að selj­ast. „Álfta­nes, þetta út­hverfi Garðabæj­ar, er kannski ekki svo ýkja ólíkt Grinda­vík þegar allt kem­ur til alls. Að minnsta kosti virðist það henta okk­ur vel, svona við allra fyrstu kynni,“ seg­ir Grind­vík­ing­ur­inn Her­mann Þ. Waldorff. Í gær voru þau Dóra Birna Jóns­dótt­ir kona hans að koma sér fyr­ir í íbúð í fjöl­býl­is­húsi við Lamba­mýri.

Tals­verður hóp­ur fólks úr Grinda­vík hef­ur sett sig niður á Álfta­nesi. Þar hafa verk­tak­ar í tals­verðum mæli byggt íbúðir sem voru komn­ar á sölu­skrá – og voru fljót­ar að selj­ast. „Álfta­nes, þetta út­hverfi Garðabæj­ar, er kannski ekki svo ýkja ólíkt Grinda­vík þegar allt kem­ur til alls. Að minnsta kosti virðist það henta okk­ur vel, svona við allra fyrstu kynni,“ seg­ir Grind­vík­ing­ur­inn Her­mann Þ. Waldorff. Í gær voru þau Dóra Birna Jóns­dótt­ir kona hans að koma sér fyr­ir í íbúð í fjöl­býl­is­húsi við Lamba­mýri.

Tekið upp úr köss­um og hlut­um val­inn staður

Her­mann nefn­ir að á síðustu árum hafi sunnu­dags­bíltúr­ar fjöl­skyld­unn­ar stund­um verið á Álfta­nesið, enda sé sund­laug­in þar í upp­á­haldi meðal barna­barn­anna. „Álfa­nesið er eins og sveit í borg­inni. Ein­hverju sinni sagði ég við kon­una að ef til þess kæmi að við þyrft­um að yf­ir­gefa Grinda­vík væri þetta kannski staður fyr­ir okk­ur. Á þorra­blóti Grind­vík­inga sem haldið var í vet­ur feng­um við svo í vinn­ing næt­urg­ist­ingu á gisti­heim­ili hér á Álfta­nesi. Til­vilj­an­irn­ar eru fleiri og þegar litið er til baka og hlut­irn­ir skoðaðir í sam­hengi var kannski skrifað í ský­in að hingað ætti leið okk­ar að liggja,“ seg­ir Her­mann – nú þegar sér fyr­ir end­ann á sex mánaða vist fjöl­skyld­unn­ar í sum­ar­húsi í Kjós.

Og nú er verk­efnið að taka upp úr köss­um og velja hlut­um sinn stað. Raða í skápa og hill­ur, setja borð og stóla á góðan stað, hengja mynd­ir á veggi og svo fram­veg­is. En kannski fyrst og síðast að skapa nota­leg­an anda. Og það sak­ar ekki að í íbúðinni er ágætt út­sýni til Keil­is og fleiri fjalla á Reykja­nesskag­an­um.

Her­mann og Dóra Birna bjuggu til skamms tíma í ný­legu 200 fer­metra ein­býli við Skipa­stíg. Það hús eins og ótal fleiri í Grinda­vík hef­ur ríkið, und­ir merkj­um Þór­kötlu – hús­næðis­fé­lags, leyst til sín og dug­ar and­virðið fyr­ir blokka­r­í­búðinni á Álfa­nesi sem er um 100 fer­metr­ar.

Ríkið borgi út hús­næði fyr­ir­tækja

„Auðvitað er sárt að þurfa að yf­ir­gefa Grinda­vík,“ seg­ir Her­mann sem með Ingimar syni sín­um hef­ur rekið litla fisk­vinnslu; Pesca Ice­land. Þar hafa þeir meðal ann­ars verkað gell­ur, allt að 200 tonn á ári, sem seld­ar hafa verið á Evr­ópu­markaði. Starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins hef­ur verið nærri höfn­inni í Grinda­vík; á svæði sem nú er þversprungið og í vinnuslu­húsið er ekki farið nema með ströng­um skil­yrðum og und­ir leiðsögn ör­ygg­is­sveita.

„Þegar rof verður í starf­semi fyr­ir­tæk­is svo mánuðum skipt­ir glat­ast markaðir, svo ein­falt er málið. Við vænt­um því þess að ríkið komi til móts við okk­ur og borgi út hús­næðið. Þannig gæt­um við byrjað á ein­hverju nýju og horft til framtíðar, sem skipt­ir svo miklu máli,“ seg­ir Her­mann sem er í hópi at­vinnu­rek­enda í Grinda­vík sem fundað hafa með stjórn­völd­um um aðgerðir í þeirra þágu. Hafa í því skyni verið haldn­ir fund­ir með þing­nefnd­um og ráðherr­um þannig að mál eru í ferli.

mbl.is