Þetta eru uppáhaldsbækur Laufeyjar

Poppkúltúr | 14. maí 2024

Þetta eru uppáhaldsbækur Laufeyjar

Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir hefur heillað heimsbyggðina með fögru söngrödd sinni og heillandi persónuleika, en henni er margt til listanna lagt og nýverið stofnaði hún bókaklúbbinn The Laufey Book Club

Þetta eru uppáhaldsbækur Laufeyjar

Poppkúltúr | 14. maí 2024

Laufey Lín Jónsdóttir er mikil lestrarkona!
Laufey Lín Jónsdóttir er mikil lestrarkona! Samsett mynd

Tón­list­ar­kon­an Lauf­ey Lín Jóns­dótt­ir hef­ur heillað heims­byggðina með fögru söngrödd sinni og heill­andi per­sónu­leika, en henni er margt til list­anna lagt og ný­verið stofnaði hún bóka­klúbb­inn The Lauf­ey Book Club

Tón­list­ar­kon­an Lauf­ey Lín Jóns­dótt­ir hef­ur heillað heims­byggðina með fögru söngrödd sinni og heill­andi per­sónu­leika, en henni er margt til list­anna lagt og ný­verið stofnaði hún bóka­klúbb­inn The Lauf­ey Book Club

Bóka­klúbb­inn stofnaði hún í von um að hvetja aðdá­end­ur sína til lest­urs, en á dög­un­um deildi hún sín­um þrem­ur upp­á­halds­bók­um í viðtali við CBC með yf­ir­skrift­inni: „Lauf­ey's Life in Books“ eða „Líf Lauf­eyj­ar í bók­um.“

Lestr­ar­ást­in kviknaði snemma

„Hæ, ég heiti Lauf­ey og þetta er líf mitt í bók­um. Bæk­urn­ar þrjár sem ég kom með – Anne of Green Gables bara vegna þess að ég held að ást mín á lestri hafi kviknað þegar ég var krakki og ég las þessa bók þegar ég var lít­il og elskaði hana svo mikið. Lest­ur er eitt­hvað sem vek­ur aft­ur, ég býst við fyr­ir mig vegna þess að við átt­um ekki iPad eða ég hafði ekki aðgang að tölvu, það minn­ir mig bara á barns­lega undr­un og þess vegna elska ég líka skáld­skap,“ seg­ir Lauf­ey í viðtal­inu. 

Anne of Green Gables, eða Anna í Grænuhlíð á íslensku, …
Anne of Green Gables, eða Anna í Grænu­hlíð á ís­lensku, er skáld­saga eft­ir Lucy Maud sem kom fyrst út árið 1908. Ljós­mynd/​Walmart.com

„Sum af upp­á­halds­lög­un­um mín­um sem eru inn­blás­in af bók­um, eða ég held að séu inn­blás­in af bók­um, eins og Tolera­te It með Tayl­or Swift finnst mér mjög líkt Re­becca eft­ir Dap­hne Du Maurier. Hún er í topp tveim­ur, lík­lega ein af mín­um upp­á­halds­bók­um sem ég hef lesið,“ bæt­ir hún við. 

Næsta bók sem Laufey nefnir er Rebecca eftir Daðhne Du …
Næsta bók sem Lauf­ey nefn­ir er Re­becca eft­ir Daðhne Du Maurier sem kom fyrst út árið 1938. Ljós­mynd/​Kirkju­sreviews.com

„Og svo er það Midnig­ht Li­brary sem ég er ekki búin að klára en ég er að lesa hana núna því hún var val­in bók mánaðar­ins fyr­ir apr­íl­mánuð í The Lauf­ey Book Club,“ sagði hún að lok­um.

Að lokum nefnir Laufey bókina The Midnight Library eftir Matt …
Að lok­um nefn­ir Lauf­ey bók­ina The Midnig­ht Li­brary eft­ir Matt Haig sem kom út árið 2020. Ljós­mynd/​Goodreads.com
mbl.is