„Að eiga afabarn er alveg nýtt og eitthvað sérstakt“

5 uppeldisráð | 18. maí 2024

„Að eiga afabarn er alveg nýtt og eitthvað sérstakt“

Jón Axel Ólafsson, rekstrarfræðingur, fyrirtækjaeigandi og útvarpsmaður hjá K100, varð afi í fyrsta sinn í árslok 2022. Sonur Jóns, Ólafur Ásgeir Jónsson framleiðslustjóri hjá True North og sambýliskona hans Silja Helgadóttir röntgenfræðingur eignuðust son, Vigni Rafn, þann 11. desember 2022. 

„Að eiga afabarn er alveg nýtt og eitthvað sérstakt“

5 uppeldisráð | 18. maí 2024

Jón Axel útvarpsmaður hefur alltaf tíma fyrir barnabarnið.
Jón Axel útvarpsmaður hefur alltaf tíma fyrir barnabarnið. Samsett mynd

Jón Axel Ólafs­son, rekstr­ar­fræðing­ur, fyr­ir­tækja­eig­andi og út­varps­maður hjá K100, varð afi í fyrsta sinn í árs­lok 2022. Son­ur Jóns, Ólaf­ur Ásgeir Jóns­son fram­leiðslu­stjóri hjá True North og sam­býl­is­kona hans Silja Helga­dótt­ir rönt­gen­fræðing­ur eignuðust son, Vigni Rafn, þann 11. des­em­ber 2022. 

Jón Axel Ólafs­son, rekstr­ar­fræðing­ur, fyr­ir­tækja­eig­andi og út­varps­maður hjá K100, varð afi í fyrsta sinn í árs­lok 2022. Son­ur Jóns, Ólaf­ur Ásgeir Jóns­son fram­leiðslu­stjóri hjá True North og sam­býl­is­kona hans Silja Helga­dótt­ir rönt­gen­fræðing­ur eignuðust son, Vigni Rafn, þann 11. des­em­ber 2022. 

Jón Axel elsk­ar að vera afi og seg­ir sam­keppn­ina um dreng­inn vera gríðarlega. „Hann á þrjá afa, fjór­ar ömm­ur og haug af frænk­um. Það eru all­ir óðir í að vera með hann enda er hann sæt­ast­ur og best­ur.

Það hef­ur lengi verið beðið eft­ir þess­um strák sem reynst hef­ur hinn fal­leg­asti sól­ar­geisli. Sjálf­ur á ég tvö börn og á frá­bært sam­band við þau í dag, en að eiga afa­barn er al­veg nýtt og eitt­hvað sér­stakt. 

Áður en hann fædd­ist voru allskyns plön um dvöl í fjar­læg­um lönd­um. Þau plön hafa mikið breyst eft­ir að dreng­ur­inn kom í heim­inn. Ein­hvern veg­inn lang­ar manni ekki að vera mikið í burtu frá hon­um, að minnsta kosti ekki á meðan hann er svona lít­ill. Það er mik­il­vægt að vera hluti af lífi hans þegar hann er að mót­ast og þrosk­ast. Afi þarf að vera til staðar og tryggja að þetta sé alltaf að fara rétt fram,“ út­skýr­ir hann. 

Jón Axel og Vignir Rafn eru miklir félagar.
Jón Axel og Vign­ir Rafn eru mikl­ir fé­lag­ar. Ljós­mynd/​Aðsend

Jón Axel hef­ur í nógu að snú­ast þessa dag­ana en gaf sér tíma til þess að deila fimm af sín­um bestu afaráðum með les­end­um Fjöl­skyld­unn­ar á mbl.is.

Tím­inn 

„Það eina sem skipt­ir máli er tím­inn sem lagður er til. Það kost­ar ekk­ert að gefa tíma og hann er það verðmæt­astas sem til er. Gefa tíma kost­ar ekk­ert og tím­inn sem fer í afastrák­inn er sá besti. Allt annað kem­ur þar á eft­ir.“

Ólafur Ásgeir Jónsson framleiðslustjóri hjá True North og sambýliskona hans …
Ólaf­ur Ásgeir Jóns­son fram­leiðslu­stjóri hjá True North og sam­býl­is­kona hans Silja Helga­dótt­ir rönt­gen­fræðing­ur eiga son­inn Vigni Rafn. Ljós­mynd/​Aðsend

Ein­læg­ur áhugi

„Það er ekk­ert eins gef­andi og að setja sig inn í hug­ar­heim barns­ins. Það sér um­hverfi sitt öðrum aug­um en við full­orðna fólkið og því er gríðarlega mik­il­vægt að setja sig í þessi spor. Það get­ur reynst erfitt....en það kem­ur að lok­um.“

Bíl­ar og tæki sem hreyf­ast

„Við val á leik­föng­um þá er gríðarlega mik­il­vægt að velja þau sem hafa upp á mestu sér­stöðuna að bjóða. Mér hef­ur tek­ist gríðarlega vel með bíla sem breyt­ast í vél­menni og lit­rík­ar bíla­braut­ir. Þetta er lyk­il­atriði.“

Ekk­ert nammi eða syk­ur

„Þar sem nammi og syk­ur er bannað af for­eldr­un­um verður maður að vera hug­mynda­rík­ur þegar kem­ur að fram­setn­ingu á ein­hverju sem er minna spenn­andi en súkkulaði og syk­ur. Það þarf að gera þetta skemmti­legt.“

Vignir Rafn er mjög hrifinn af matargerð afa síns.
Vign­ir Rafn er mjög hrif­inn af mat­ar­gerð afa síns. Ljós­mynd/​Aðsend

Ein­læg ást, vænt­umþykja og ör­yggi

„Það er ekk­ert sem jafn­ast á við það þegar maður er beðinn um faðmlag eða þegar óskað er eft­ir að fá að koma til afa. Það er eitt­hvað svo ein­lægt og fal­legt. Þess vegna má aldrei stofna því sam­bandi í hættu, ör­yggi skap­ar traust. 

Afafangið þarf að vera ör­ugg­asti staður í heimi og það má aldrei ögra þeirri líðan með leik sem skap­ar hræðslu og óör­yggi. Afi er alltaf til staðar, hef­ur alltaf tíma og er það traust­asta sem til er. Það er ekk­ert sem afi get­ur ekki.“

mbl.is