Fjölskylda Censori óttast um velferð hennar

Kardashian | 18. maí 2024

Fjölskylda Censori óttast um velferð hennar

Ástvinir Biöncu Censori, „eig­in­konu“ rapparans Kanye West, eru áhyggjufullir og sorgmæddir yfir áformum rapparans sem tilkynnti nýverið um stofnun framleiðslufyrirtækisins Yeezy Porn.

Fjölskylda Censori óttast um velferð hennar

Kardashian | 18. maí 2024

Kanye West og Bianca hafa verið saman frá árinu 2022.
Kanye West og Bianca hafa verið saman frá árinu 2022. Skjáskot/Instagram

Ástvin­ir Biöncu Censori, „eig­in­konu“ rapp­ar­ans Kanye West, eru áhyggju­full­ir og sorg­mædd­ir yfir áform­um rapp­ar­ans sem til­kynnti ný­verið um stofn­un fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­is­ins Yeezy Porn.

Eins og nafnið gef­ur til kynna mun fyr­ir­tækið ein­blína á fram­leiðslu klám­mynda.

Fjöl­skylda Censori er sögð ótt­ast um vel­ferð henn­ar og tel­ur hana í hættu á að leiðast út í vændi en Censori, lærður arki­tekt, er sögð hlýða „eig­in­manni“ sín­um í einu og öllu.

For­eldr­ar Censori segja að West hafi heilaþvegið dótt­ur sína. 

West er sagður vera kom­inn í sam­starf með Michael Mosny, bet­ur þekkt­ur sem Mike Moz. Mosny er mik­ill reynslu­bolti úr klám­heim­in­um og vann meðal ann­ars með Stor­my Daniels, klám­mynda­stjörnu og fyrr­um hjásvæfu Don­ald Trump. 

Rapp­ar­inn hef­ur ratað mikið í fjöl­miðla síðustu ár, fyrst fyr­ir ógn­andi skila­boð til fyrr­ver­andi eig­in­konu sinn­ar, Kim Kar­dashi­an, en síðar fyr­ir and­gyðinga­leg um­mæli hans, fatnað með áletr­un­inni Hvít líf skipta máli (e. White Li­ves Matter) og fyr­ir að sýna sam­starfs­fólki sínu klám, svo eitt­hvað sé nefnt. 

mbl.is