Leita þyrlunnar: Forsetinn og utanríkisráðherra um borð

Íran | 19. maí 2024

Leita þyrlunnar: Forsetinn og utanríkisráðherra um borð

Íranski forsetinn Ebrahim Raisi og utanríkisráðherra landsins, Hossein Amirabdollahian, voru um borð í þyrlu forsetans sem er sögð hafa lent í slysi. 

Leita þyrlunnar: Forsetinn og utanríkisráðherra um borð

Íran | 19. maí 2024

Ebrahim Raisi forseti Íran er sagður hafa verið um borð …
Ebrahim Raisi forseti Íran er sagður hafa verið um borð ásamt utanríkisráðherra landsins, Hossein Amirabdollahian. AFP

Íranski for­set­inn Ebra­him Raisi og ut­an­rík­is­ráðherra lands­ins, Hossein Amira­bdolla­hi­an, voru um borð í þyrlu for­set­ans sem er sögð hafa lent í slysi. 

Íranski for­set­inn Ebra­him Raisi og ut­an­rík­is­ráðherra lands­ins, Hossein Amira­bdolla­hi­an, voru um borð í þyrlu for­set­ans sem er sögð hafa lent í slysi. 

BBC grein­ir frá því að þyrl­an hafi lent harka­lega eft­ir að hún komst í hann krapp­an vegna þoku í háloft­un­um. Ekki hafa all­ir miðlar greint frá sömu upp­lýs­ing­um til þessa og var lengi óljóst hvort for­set­inn sjálf­ur hefði verið um borð. 

Skjáskot úr myndskeiði sem íranska ríkisútvarpið birti og er sagt …
Skjá­skot úr mynd­skeiði sem ír­anska rík­is­út­varpið birti og er sagt sýna björg­un­araðila á leið á vett­vang. AFP

Leit gengið erfiðlega

At­vikið átti sér stað í norðaust­ur­hluta lands­ins og eru björg­un­araðgerðir í gangi en þyrl­an var  ein af þrem­ur þyrl­um for­set­ans sem voru á leið frá Aser­baísj­an til borg­ar­inn­ar Tabriz í Íran.

Inn­an­rík­is­ráðherra Íran, Ahmad Va­hidi, seg­ir viðbragðsaðila nú leggja kapp á að reyna að kom­ast að þyrlunni en leit­in hef­ur reynst þeim erfið sök­um veðurfars.

For­set­inn er 63 ára að aldri og hlaut kjör til embætt­is for­seta árið 2021 og er al­mennt álit­inn harðlínuklerk­ur sem sé lík­leg­ur arftaki æðsta leiðtoga lands­ins, Ayatollah Khamenei, sem hef­ur verið við völd síðan árið 1989.  

mbl.is