Þyrla forsetans lenti í „slysi“

Íran | 19. maí 2024

Þyrla forsetans lenti í „slysi“

Þyrla íranska forsetans lenti í „slysi“ í dag að sögn íranskra fjölmiðla. Óvíst er hvort Ebrahim Raisi forseti hafi verið í þyrlunni. 

Þyrla forsetans lenti í „slysi“

Íran | 19. maí 2024

Ebrahim Raisi forseti Íran.
Ebrahim Raisi forseti Íran. AFP/Ishara S.Kodikara

Þyrla ír­anska for­set­ans lenti í „slysi“ í dag að sögn ír­anskra fjöl­miðla. Óvíst er hvort Ebra­him Raisi for­seti hafi verið í þyrlunni. 

Þyrla ír­anska for­set­ans lenti í „slysi“ í dag að sögn ír­anskra fjöl­miðla. Óvíst er hvort Ebra­him Raisi for­seti hafi verið í þyrlunni. 

At­vikið átti sér stað norðaust­ur­hluta lands­ins og eru björg­un­araðgerðir í gangi. 

CNN grein­ir frá því að þyrl­an hafi verið ein af þrem­ur þyrl­um for­set­ans sem voru á leið frá Aser­baíd­sj­an. 

Slæm veður­skil­yrði eru á svæðinu og mik­il þoka sem gera viðbragðsaðilum erfitt fyr­ir. 

Hinar tvær þyrlurn­ar komust þá á áfangastað. 

Íransk­ir miðlar greina frá því að Hossein Amir-Abdolla­hi­an ut­an­rík­is­ráðherra, auk annarra emb­ætt­is­manna, hafi verið í sömu þyrlu og Raisi. 

Raisi er 63 ára gam­all og hef­ur verið for­seti Íran frá ár­inu 2021. 

mbl.is