Ró í dönskum hönnunarbústaði með engu sjónvarpi

Heimili | 2. júní 2024

Ró í dönskum hönnunarbústaði með engu sjónvarpi

Í miðjum óspilltum skógi nálægt bænum Ejstrupholm í Danmörku er að finna afar sjarmerandi sumarbústað þar sem tilvalið er að hlaða batteríin eftir langa viku.

Ró í dönskum hönnunarbústaði með engu sjónvarpi

Heimili | 2. júní 2024

Húsið er hannað á afar fallegan máta, bæði að utan …
Húsið er hannað á afar fallegan máta, bæði að utan og innan. Samsett mynd

Í miðjum óspillt­um skógi ná­lægt bæn­um Ejstrup­holm í Dan­mörku er að finna afar sjarmer­andi sum­ar­bú­stað þar sem til­valið er að hlaða batte­rí­in eft­ir langa viku.

Í miðjum óspillt­um skógi ná­lægt bæn­um Ejstrup­holm í Dan­mörku er að finna afar sjarmer­andi sum­ar­bú­stað þar sem til­valið er að hlaða batte­rí­in eft­ir langa viku.

Ró og nota­leg­heit eru í aðal­hlut­verki í hús­inu þar sem áhersla er lögð á að minnka ut­anaðkom­andi áreiti sem mest. Því er ekk­ert sjón­varp í hús­inu og gest­ir hvatt­ir til að njóta nátt­úr­unn­ar í kring í stað þess að horfa á skjái.

Húsið er um­vafið fal­leg­um gróðri og óhætt að segja að staður­inn sé sann­kölluð para­dís fyr­ir nátt­úru­unn­end­ur. Í kring­um húsið má finna ótal skemmti­leg­ar göngu­leiðir, en þar að auki hef­ur nota­legri aðstöðu verið komið fyr­ir úti þar sem hægt er að spjalla, sóla sig og slaka á. 

Nátt­úr­an dreg­in inn með hönn­un­inni

Í hönn­un bú­staðar­ins er nátt­úr­an dreg­in inn með fal­legri litap­all­ettu, nota­leg­um efnivið og mini­malísk­um blæ. Ljóst par­ket prýðir gólfin og tón­ar fal­lega við kalk­málaða veggi sem gefa rým­um húss­ins mýkt og karakt­er. Þá er viður áber­andi í sum­ar­bú­staðnum sem gef­ur hon­um þetta ró­lega yf­ir­bragð.

Húsið er hægt að leigja út á bók­un­ar­vef Airbnb, en það stát­ar af tíu svefn­her­bergj­um og fimm baðher­bergj­um og get­ur því rúmað allt að 20 gesti hverju sinni. Í byrj­un júlí kost­ar nótt­in í hús­inu rúm­lega 100 þúsund krón­ur. 

Ljós­mynd/​Airbnb.com
Ljós­mynd/​Airbnb.com
Ljós­mynd/​Airbnb.com
Ljós­mynd/​Airbnb.com
Ljós­mynd/​Airbnb.com
Ljós­mynd/​Airbnb.com
Ljós­mynd/​Airbnb.com
Ljós­mynd/​Airbnb.com
Ljós­mynd/​Airbnb.com
Ljós­mynd/​Airbnb.com
Ljós­mynd/​Airbnb.com
Ljós­mynd/​Airbnb.com
Ljós­mynd/​Airbnb.com
mbl.is