Sjómönnum tryggt 54% meira fyrir þorskinn

Kjaramál sjómanna | 6. júní 2024

Sjómönnum tryggt 54% meira fyrir þorskinn

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna og útvegsmanna, sem haldinn var 4. júní 2024, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði og hækkaði viðmiðunarverð á slægðum þorski um 2% og lækkaði viðmiðunarverð fyrir karfa um 4%. Viðmiðunarverð óslægðs þorsks, slægðrar og óslægðrar ýsu sem og viðmiðunarverð ufsa helst óbreytt.

Sjómönnum tryggt 54% meira fyrir þorskinn

Kjaramál sjómanna | 6. júní 2024

Viðmiðunarverð þorsks hefur hækkað um meira en helming frá júní …
Viðmiðunarverð þorsks hefur hækkað um meira en helming frá júní 2021. mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson

Á fundi hags­muna­sam­taka sjó­manna og út­vegs­manna, sem hald­inn var 4. júní 2024, var ákveðið að breyta viðmiðun­ar­verði og hækkaði viðmiðun­ar­verð á slægðum þorski um 2% og lækkaði viðmiðun­ar­verð fyr­ir karfa um 4%. Viðmiðun­ar­verð óslægðs þorsks, slægðrar og óslægðrar ýsu sem og viðmiðun­ar­verð ufsa helst óbreytt.

Þrátt fyr­ir að lít­il­væg­ar breyt­ing­ar voru gerðar á viðmiðun­ar­verði síðastliðinn þriðju­dag vek­ur at­hygli að viðmiðun­ar­verð á þorski hef­ur auk­ist um 54,4% frá júní 2021 og á sama tíma­bili hef­ur viðmiðun­ar­verð á ufsa hækkað um 48,1% og 13,5% fyr­ir karfa, en hef­ur lækkað um 9% fyr­ir ýsu. Verðlækk­un á ýsu má lík­lega rekja til gríðarlegr­ar aukn­ing­ar í fram­boði ýsu á mörkuðum í sam­ræmi við aukna ráðgjöf síðustu ára.

Viðmiðun­ar­verð Verðlags­stofu skipta­verðs er lág­marks­verð í viðskipt­um milli skyldra aðila og er til grund­vall­ar laun­um sjó­manna. Verðið er ákv­arðað af Úrsk­urðar­nefnd sjó­manna og út­vegs­manna sam­kvæmt viðmiðum gild­andi kjara­samn­ings milli Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, Sam­taka at­vinnu­lífs­ins og Sjó­manna­sam­bands Íslands.

mbl.is