Sex ára gömul og strax komin með fyrirsætusamning

Kardashian | 7. júní 2024

Sex ára gömul og strax komin með fyrirsætusamning

True Thompson, dóttir raunveruleikastjörnunnar og athafnakonunnar Khloe Kardashian, er nýjasti meðlimur fjölskyldunnar til að landa fyrirsætusamningi, en hún er aðeins sex ára gömul.

Sex ára gömul og strax komin með fyrirsætusamning

Kardashian | 7. júní 2024

Mægðurnar Khloe Kardashian og True Thompson.
Mægðurnar Khloe Kardashian og True Thompson. Skjáskot/Instagram

True Thomp­son, dótt­ir raun­veru­leika­stjörn­unn­ar og at­hafna­kon­unn­ar Khloe Kar­dashi­an, er nýj­asti meðlim­ur fjöl­skyld­unn­ar til að landa fyr­ir­sætu­samn­ingi, en hún er aðeins sex ára göm­ul.

Kar­dashi­an-Jenner fjöl­skyld­an er þekkt fyr­ir að landa stór­um viðskipta­samn­ing­um við hin ýmsu fyr­ir­tæki, en á dög­un­um til­kynnti Kar­dashi­an að dótt­ir henn­ar væri nýj­asta and­lit barna­merk­is­ins Zip N' Bear sem sel­ur lit­rík nátt­föt með sér­sniðnum bangsa sem er klædd­ur í sömu nátt­föt. 

Á rán­dýr­an fata­skáp með merkja­vör­um

Það er óhætt að segja að Kar­dashi­an-Jenner fjöl­skyld­an lifi ekki hinum hefðbundna lífs­stíl, en það sama á við um börn­in þeirra sem fá iðulega af­mæl­is­veisl­ur sem minna helst á brúðkaup og gjaf­ir sem inni­halda rán­dýr­ar hönn­un­ar­vör­ur.

Thomp­son hef­ur þó nokkr­um sinn­um ratað í fjöl­miðla fyr­ir að vera klædd í hönn­un­ar­fatnað með dýr­ar tösk­ur. Þegar hún var þriggja ára göm­ul birti Kar­dashi­an mynd af Thomp­son klædd í Dior frá toppi til táar. Þá hef­ur hún einnig birt mynd­ir af henni með tösk­ur af dýr­ari gerðinni, þar á meðal veski frá Judith Lei­ber sem kost­ar rúm­lega hálfa millj­ón ís­lenskra króna og sér­merkta 243 þúsund króna Lou­is Vuitt­on-tösku. 

mbl.is