Blæs á sögusagnir um sambandsslit

Ást | 12. júní 2024

Blæs á sögusagnir um sambandsslit

Íslandsvinkonan og Love Island-stjarnan Molly-Mae Hague birti á dögunum myndband á Youtube-rás sinni þar sem hún blæs á sögusagnir um sambandsslit við unnusta hennar, Tommy Fury.

Blæs á sögusagnir um sambandsslit

Ást | 12. júní 2024

Molly-Mae Hague og Tommy Fury ásamt dóttur sinni, Bambi.
Molly-Mae Hague og Tommy Fury ásamt dóttur sinni, Bambi. Skjáskot/Instagram

Íslands­vin­kon­an og Love Is­land-stjarn­an Molly-Mae Hague birti á dög­un­um mynd­band á Youtu­be-rás sinni þar sem hún blæs á sögu­sagn­ir um sam­bands­slit við unn­usta henn­ar, Tommy Fury.

Íslands­vin­kon­an og Love Is­land-stjarn­an Molly-Mae Hague birti á dög­un­um mynd­band á Youtu­be-rás sinni þar sem hún blæs á sögu­sagn­ir um sam­bands­slit við unn­usta henn­ar, Tommy Fury.

Sam­band Hague og Fury hef­ur verið áber­andi í fjöl­miðlum síðustu mánuði eða allt frá því í des­em­ber þegar Fury sást með ann­arri konu á skemmti­stað í Dúbaí. At­vikið olli miklu fjaður­foki og í kjöl­farið sást Hague oft­ar en einu sinni án trú­lof­un­ar­hrings­ins. 

Hague og Fury fundu hvort annað í raun­verulekaþátt­un­um Love Is­land, en þau höfnuðu í öðru sæti í fimmtu þáttaröð. Síðan þá hafa þau eign­ast dótt­ur sam­an, Bambi, og trú­lofað sig. Sam­bandið hef­ur þó ekki alltaf verið dans á rós­um og hef­ur Hague talað op­in­skátt um ýmsa erfiðleika sem þau hafa gengið í gegn­um.

Hrós­ar Fury í há­stert

Í nýja Youtu­be-mynd­bandi Hague hrós­ar hún Fury í há­stert fyr­ir að vera dá­sam­leg­ur faðir og sagði að hann væri „allt sem hún gæti óskað sér og meira en það“.

„Hann er á Trafford Center með henni, satt að segja er hann svo góður við Bambi. Tommy hef­ur alltaf verið mjög góður pabbi en ný­lega, þar sem hún er byrjuð að ganga, finnst mér eins og þau séu orðin svo náin og hann er svo góður við hana,“ út­skýrði Hague.



mbl.is