Fagnar sögulegu láni til Úkraínu

Úkraínustríðið | 13. júní 2024

Fagnar sögulegu láni til Úkraínu

Olaf Scholz Þýskalandskanslari fagnar nýju láni til Úkraínu sem hann segir sögulegt.

Fagnar sögulegu láni til Úkraínu

Úkraínustríðið | 13. júní 2024

Olaf Scholz Þýskalandskanslari á fundi leiðtoga G-7 ríkjanna.
Olaf Scholz Þýskalandskanslari á fundi leiðtoga G-7 ríkjanna. AFP

Olaf Scholz Þýska­landskansl­ari fagn­ar nýju láni til Úkraínu sem hann seg­ir sögu­legt.

Olaf Scholz Þýska­landskansl­ari fagn­ar nýju láni til Úkraínu sem hann seg­ir sögu­legt.

Þetta seg­ir Scholz á leiðtoga­fundi G7-ríkj­anna sem er hald­inn í dag og þar sem lánið var samþykkt.

Lánið nem­ur 50 millj­örðum dala og er hagnað af frosn­um eign­um Rússa varið til að fjár­magna það.

Lánið grund­völl­ur fyr­ir Úkraínu

„Lánið er skýrt merki til Rúss­lands­for­seta um að hann geti ekki ein­fald­lega setið þetta mál út,“ seg­ir Scholz á fund­in­um sem hald­inn er á Ítal­íu.

„Grund­völl­ur­inn hef­ur verið gerður fyr­ir Úkraínu til þess að út­vega allt sem það þarf [...] í ná­inni framtíð hvað varðar vopn en einnig hvað varðar fjár­fest­ingu í upp­bygg­ingu eða í orku­mann­virkj­um,“ seg­ir hann.

mbl.is