Kennir Tom Brady um sambandsslitin við jui-jitsu-kappann

Stjörnur skilja | 14. júní 2024

Kennir Tom Brady um sambandsslitin við jui-jitsu-kappann

Bras­il­íska of­ur­fyr­ir­sæt­an Gisele Bündchen og jui-jitsu-kappinn Joaquim Valente eru sögð vera hætt saman eftir að fyrrverandi eiginmaður fyrirsætunnar, NFL-stjarnan Tom Brady, skaut föstum skotum á samband þeirra á Netflix. 

Kennir Tom Brady um sambandsslitin við jui-jitsu-kappann

Stjörnur skilja | 14. júní 2024

Gisele Bündchen er sögð vera einhleyp á ný!
Gisele Bündchen er sögð vera einhleyp á ný! AFP

Bras­il­íska of­ur­fyr­ir­sæt­an Gisele Bündchen og jui-jitsu-kapp­inn Joaquim Valente eru sögð vera hætt sam­an eft­ir að fyrr­ver­andi eig­inmaður fyr­ir­sæt­unn­ar, NFL-stjarn­an Tom Bra­dy, skaut föst­um skot­um á sam­band þeirra á Net­flix. 

Orðróm­ur um ástar­sam­band Bündchen og Valente fór fyrst á flug í nóv­em­ber 2022, aðeins tveim­ur mánuðum eft­ir skilnað fyr­ir­sæt­unn­ar og Bra­dy sem höfðu þá verið í hjóna­bandi í 13 ár. 

„Hann hataði þetta“

Heim­ild­armaður In Touch Weekly seg­ir að „kast­ljósið væri of mikið“ fyrr Valente, en eins og fram hef­ur komið var hann jui-jitsu-þjálf­ari fyr­ir­sæt­unn­ar áður en sam­band þeirra varð róm­an­tískt á síðasta ári. 

„Joaquim er venju­leg­ur strák­ur. Hann er ekki van­ur allri þeirri at­hygli sem hann fékk,“ bæt­ir heim­ild­armaður­inn við. 

Ekki er ljóst ná­kvæm­lega hvenær parið hætti sam­an, en þau hafa ekki sést sam­an síðan í lok apríl. Heim­ild­armaður­inn seg­ir hlut­ina hafa snú­ist til hins verra í kjöl­far Net­flix-þátta Bra­dy þar sem hann skaut föst­um skot­um á ástar­sam­band Bündchen og Valente. 

„Joaquim varð hluti af brand­ar­an­um. Fólk byrjaði í raun að spyrja hann hvort hann væri ástæðan fyr­ir skilnaði þeirra. Hann hataði það,“ út­skýr­ir heim­ild­armaður­inn. Þá kem­ur fram á vef Page Six að fyr­ir­sæt­an kenni Bra­dy um sam­bands­slit­in.

mbl.is