Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra segir miðflokksmenn steyta hnefann með því að íhuga vantrausttillögu í hennar garð. Hún segir það koma sér spánskt fyrir sjónir að flokkur sem styðji hvalveiðar ætli að leggja fram vantraust á ráðherra sem leyfi þær.

Blaðamaður spurði ráðherrann út í vantrauststillöguna á kynningarfundi stjórnvalda vegna uppfærðrar aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum.
„Ég held að þetta séu miðflokksmenn steyta hnefann dálítið og sjá sér leik á borði. Mér finnst þetta óttalegt pólitískt klámhögg svo ég segi það bara hreint út,“ segir hún og heldur áfram:
„Það kemur mér líka spánskt fyrir sjónir að flokkur hlynntur hvalveiðum ætli að leggja fram vantraust á ráðherra sem gaf út hvalveiðaleyfi.“