Útflutningur eldisafurða var á miklu flugi í maí og náði útflutningsverðmætið 3,2 milljörðum króna í mánuðinum sem er 80% aukning frá sama mánuði á síðasta ári. Þá er útflutningsverðmæti eldisafurða á fyrstu fimm mánuðum komið í rúmlega 22 milljarða króna, sem er 18% aukning frá sama tímabili 2023 og hefur verðmæti þessara afurða aldrei verið meira á þessum árshluta.

Fjallað er um þetta í nýlegri greiningu Radarsins og er vísað í bráðabirgðatölur Hagstofu Íslands sem birtar voru í síðustu viku.
Þá var útflutningsverðmæti eldisafurða ígildi 15% af útflutningsverðmæti sjávarafurða á fyrstu fimm mánuðum ársins og um 6% af vöruútflutnings alls. Þessi hlutföll hafa aldrei verið hærri en nú.
„Í fyrstu bráðabirgðatölum Hagstofunnar er útflutningsverðmæti eldisafurða í heild einungis birt og því liggur ekki fyrir sundurliðun verðmæta niður á einstaka tegundir í maímánuði. Vafalaust má rekja þessa myndarlegu aukningu í maí til laxeldis, líkt og mánuðina á undan. Þannig var útflutningsverðmæti eldislax komið í tæpa 17 milljarða króna á fyrstu 4 mánuðum ársins, sem er um 20% aukning frá sama tímabili í fyrra á föstu gengi. Hlutdeild lax af útflutningsverðmæti eldisafurða í heild var rúm 87% á fyrstu 4 mánuðunum samanborið við rúm 81% á sama tímabili í fyrra,“ segir í greiningu Radarsins.
Bent er á að það var verulegur samdráttur í útflutningsverðmæti silungs á tímabilinu og er þar að mestu um að ræða bleikju.
„Þannig nam útflutningsverðmæti silungs tæplega 1,5 milljarði króna á fyrstu 4 mánuðum ársins samanborið við 2,1 milljarð á sama tíma í fyrra. Svipaða sögu er að segja um frjóvguð hrogn, sem er verðmæt hátækniframleiðsla. Útflutningsverðmæti þeirra var komið í tæpar 400 milljónir króna á fyrstu 4 mánuðum ársins, sem er 43% samdráttur á milli ára. Á móti hafa útflutningstekjur af Senegal flúru, sem er einn verðmætasti matfiskur í heimi, aldrei verið meiri á fyrstu 4 mánuðunum og nú í ár. Þannig var útflutningsverðmæti Senegal flúru komið í rúmar 500 milljónir á tilgreindu tímabili, sem er 150% aukning á milli ára á föstu gengi.“
ýverið var greint frá því að útflutningsverðmæti sjávarafurða í maí hafi náð 35 milljörðum króna dem er 3,5% meira en í sama mánuði á síðasta ári í krónum talið en þar sem lítil breyting hefur verið á gengi krónunnar er aukningin í erlendri mynt 4%.
Útflutningsverðmæti sjávarafurða á fyrstu fimm mánuðum ársins 2024 námu 146 milljörðum króna sem er 1,5% minna en á sama tímabili á síðasta ári að teknu tilliti til gengisbreytinga.