Fjöldi brota ekki hár miðað við leyfafjölda

Leigubílaþjónusta | 18. júní 2024

Fjöldi brota ekki hár miðað við leyfafjölda

Daníel O. Einarsson, formaður Frama – félags leigubílstjóra, segir þann fjölda kæra sem tugir leigubílstjóra eiga yfir höfði sér eftir eftirlit lögreglunnar, ekki háan. Leyfi til leigubílaaksturs séu yfir 900 talsins og aðeins 105 hafi verið skoðaðir í eftirlitinu í þetta sinn.

Fjöldi brota ekki hár miðað við leyfafjölda

Leigubílaþjónusta | 18. júní 2024

Daníel O. Einarsson er formaður Frama - félags leigubílstjóra
Daníel O. Einarsson er formaður Frama - félags leigubílstjóra mbl.is/Unnur Karen, Aðsend

Daní­el O. Ein­ars­son, formaður Frama – fé­lags leigu­bíl­stjóra, seg­ir þann fjölda kæra sem tug­ir leigu­bíl­stjóra eiga yfir höfði sér eft­ir eft­ir­lit lög­regl­unn­ar, ekki háan. Leyfi til leigu­bíla­akst­urs séu yfir 900 tals­ins og aðeins 105 hafi verið skoðaðir í eft­ir­lit­inu í þetta sinn.

Daní­el O. Ein­ars­son, formaður Frama – fé­lags leigu­bíl­stjóra, seg­ir þann fjölda kæra sem tug­ir leigu­bíl­stjóra eiga yfir höfði sér eft­ir eft­ir­lit lög­regl­unn­ar, ekki háan. Leyfi til leigu­bíla­akst­urs séu yfir 900 tals­ins og aðeins 105 hafi verið skoðaðir í eft­ir­lit­inu í þetta sinn.

Í eft­ir­lits­hrinu lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu með leigu­bif­reiðum um helg­ina kom í ljós að fjöldi stóðst ekki kröf­ur um leyfi og eiga nú 48 leigu­bíl­stjór­ar yfir höfði sér kæru.

„Þetta eru mjög fáir, þeir segj­ast bara hafa skoðað 105,“ seg­ir Daní­el í sam­tali við mbl.is.  

Já, þetta eru 48 af 105 samt?

„Já, en ég get sagt ykk­ur að í Nor­egi fyr­ir mánuði síðan þá skoðaði lög­regl­an í Osló 368 bíla og þá voru aðeins 38 bíl­ar með hlut­ina í lagi. Af 368 bíl­um voru aðeins 38 bíl­ar með hlut­ina í lagi en 275 höfðu fengið eina eða fleiri áminn­ing­ar til lag­fær­ing­ar, 50 bíl­ar voru sett­ir í bann og fimm bíl­ar voru kyrr­sett­ir,“ svar­ar Daní­el.

Yfir 900 leyfi gef­in út

Spurður hvort hon­um þyki þetta ekki hátt hlut­fall miðað við stærð markaðar­ins hér á landi svar­ar hann því neit­andi.

„Nei af því það er búið að gera þetta frjálst og það er kom­inn svo mik­ill fjöldi bíla. Menn þekkja ekki um­hverfið og þekkja ekki regl­urn­ar, þeir eru bún­ir að fara í gegn­um nám­skeið og taka prófið en það hef­ur ekk­ert raun­færni­mat farið fram og þeir hafa ekk­ert starfs­nám að baki. Þeim kannski bara finnst allt í lagi að taka prófið og gleyma síðan því sem prófið sner­ist um. Fara svo að vinna og fara ekki að regl­um. Þetta eru mjög fáir bíl­ar, 105 bíl­ar eru mjög fáir af því leyf­in eru orðin svo mörg. Leyf­in eru kom­in yfir 900, sem eru í um­ferð, plús leyf­in sem eru hætt í um­ferð en geta verið að störf­um þó þau hafi verið lögð inn. Það er þetta sem vant­ar, það er ekk­ert ut­an­um­hald,“ seg­ir Daní­el. 

„Eft­ir­litið er lyk­ill­inn að ör­ygg­inu“

Þá vanti yf­ir­lit yfir það hvar á land­inu leyf­in séu nýtt eft­ir að svæðatak­mörk­un var af­num­in. Eft­ir­lit skorti á lands­byggðinni en hann fagn­ar þó eft­ir­liti lög­reglu á höfuðborg­ar­svæðinu.

„Við fögn­um eft­ir­liti og þökk­um lög­regl­unni fyr­ir það að sinna þessu eft­ir­liti, því það er nauðsyn­legt. Það er það aðhald sem við höf­um kallað eft­ir. Það hef­ur ekki verið í mörg ár og er ástæðan fyr­ir því að svört starf­semi hef­ur grafið þannig und­an stétt­inni, að það vantaði leigu­bíla og þá kvartaði fólk yfir því að það vantaði leigu­bíla, en það var ekki hlustað á okk­ur sem vor­um búin að óska eft­ir eft­ir­liti í mörg ár. Það þarf að vera til staðar eft­ir­lit því um það snýst ör­yggi al­menn­ings í um­hverfi leigu­bif­reiða. Þess vegna höf­um við oft og lengi til haft eft­ir­lit með okk­ur sjálf­um og það var bundið í lög um leigu­bíla að starf­semi leigu­bíla­stöðva skyldi vera skipu­lögð með samþykki og sam­ráði við fé­lag leigu­bif­reiðastjóra, það er tekið úr lög­un­um og þar með er okk­ar eft­ir­lit eig­in­lega dottið úr sam­hengi,“ seg­ir Daní­el.

Að lok­um hvet­ur hann lög­regl­una til þess að halda eft­ir­lit­inu áfram og jafn­framt hafa frek­ara eft­ir­lit með ómerkt­um bif­reiðum sem sinni fólks­flutn­ing­um gegn gjaldi. Hann legg­ur til að leigu­bif­reiðir und­ir eft­ir­liti verði sett á litaðar núm­era­plöt­ur til þess að tryggja ör­yggi fyr­ir farþega.

„Eft­ir­litið er lyk­ill­inn að ör­ygg­inu,“ seg­ir Daní­el.

mbl.is