Eiginkonan alblóðug á hótelherberginu

Poppkúltúr | 19. júní 2024

Eiginkonan alblóðug á hótelherberginu

Howie Mandel, einn af dómurum vinsælu sjónvarpsþáttanna America's Got Talent, hefur opnað sig um óhugnanlegt atvik þegar hann fann eiginkonu sína, Terry, alblóðuga um miðja nótt á gólfinu inni á hótelherbergi þeirra hjóna í Las Vegs á dögunum.

Eiginkonan alblóðug á hótelherberginu

Poppkúltúr | 19. júní 2024

Howie Mandel.
Howie Mandel. Skjáskot/Facebook

Howie Mandel, einn af dómur­um vin­sælu sjón­varpsþátt­anna America's Got Talent, hef­ur opnað sig um óhugn­an­legt at­vik þegar hann fann eig­in­konu sína, Terry, al­blóðuga um miðja nótt á gólf­inu inni á hót­el­her­bergi þeirra hjóna í Las Vegs á dög­un­um.

Howie Mandel, einn af dómur­um vin­sælu sjón­varpsþátt­anna America's Got Talent, hef­ur opnað sig um óhugn­an­legt at­vik þegar hann fann eig­in­konu sína, Terry, al­blóðuga um miðja nótt á gólf­inu inni á hót­el­her­bergi þeirra hjóna í Las Vegs á dög­un­um.

Mandel sagði í spjallþætt­in­um Live With Kelly and Mark að hann hafi vaknað við háan hvell og orðið skelf­ingu lost­inn þegar hann kveikti ljós­in í her­berg­inu. Þar lá Terry á gólf­inu í blóðpolli. Hún hafði verið á brölti um nótt­ina þegar hún missti jafn­vægið og féll harka­lega utan í vegg með þeim af­leiðing­um að hún hlaut slæma áverka á vinstra auga og kinn­beini. Þá opnaðist einnig stór skurður á enn­inu á henni. 

Mandel seg­ist strax hafa byrjað að þrýsta á skurðinn og fann til kald­an drykk í ís­skápn­um til að kæla bólg­urn­ar á meðan hann hafði sam­band við neyðarlín­una. Hann seg­ir það aðeins heppni að ekki hafi farið verr og staðfest­ir að Terry sé á góðum bata­vegi eft­ir slysið.

Þau höfðu verið úti að skemmta sér þetta kvöld og er ölv­un sögð ástæða slæms jafn­væg­is hjá Terry.

Hjón­in kynnt­ust fyrst sem skóla­fé­lag­ar í mennta­skóla og hafa verið gift síðan árið 1980. Núna eiga þau sam­an þrjú börn, þau Alex, Jackie og Riley.

Page Six

mbl.is