Forvitnast um aðgerðir vegna svindlara

Leigubílaþjónusta | 19. júní 2024

Forvitnast um aðgerðir vegna svindlara

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, hefur sent fyrirspurn á Svandísi Svavarsdóttur innviðaráðherra um svindl manna á ökuprófi.

Forvitnast um aðgerðir vegna svindlara

Leigubílaþjónusta | 19. júní 2024

Bergþór hefur sent fyrirspurn á innviðaráðherra.
Bergþór hefur sent fyrirspurn á innviðaráðherra. Samsett mynd/mbl.is/Arnþór/Unnur

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokks­ins, hef­ur sent fyr­ir­spurn á Svandísi Svavars­dótt­ur innviðaráðherra um svindl manna á öku­prófi.

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokks­ins, hef­ur sent fyr­ir­spurn á Svandísi Svavars­dótt­ur innviðaráðherra um svindl manna á öku­prófi.

Eins og mbl.is hef­ur fjallað um áður þá hafa komið fram ásak­an­ir um að próf­tak­ar í svo­kölluðum „hark­ara­próf­um“ sem gefa rétt­indi til leigu­bíla­akst­urs hafi svindlað á próf­um og þar með aflað sér rétt­inda með röngu.

Próf Öku­skól­ans í Mjódd hafa verið nefnd í því sam­bandi.

Spyr hvort til greina komi að ógilda rétt­indi 

Í fyr­ir­spurn Bergþórs spyr hann hvort gripið hafi verið til aðgerða vegna frétta af svindli manna á öku­prófi með notk­un hjálp­ar­tækja, svo sem farsíma, og/​eða með hjálp aðstoðar­manns.

Þá spyr hann innviðaráðherra einnig hvort til greina komi að ógilda rétt­indi, þar sem próftaki svindlaði, og láta viðkom­andi end­ur­taka prófið.

Í mars greindi Sam­göngu­stofa frá því í svari til Morg­un­blaðsins að stofn­un­in hefði beint þeim fyr­ir­mæl­um til skól­ans að sím­ar yrðu að vera bannaðir á meðan próf­taka stæði yfir og að eft­ir­lit þyrfti að vera aukið.

mbl.is