Man ekki eftir að hafa verið í Perfect Match

Poppkúltúr | 21. júní 2024

Man ekki eftir að hafa verið í Perfect Match

Leikarinn og raunveruleikastjarnan Harry Jowsey, sem er líklega hve þekktastur fyrir að koma fram í Netflix-sjónvarpsþáttunum Too Hot To Handle, viðurkennir að hann hafi verið drukkinn mest allan tímann á meðan tökur á raunveruleikaþáttunum Perfect Match stóðu yfir. 

Man ekki eftir að hafa verið í Perfect Match

Poppkúltúr | 21. júní 2024

Leikarinn og Raunveruleikastjarnan Harry Jowsey í tökum fyrir sjónvarpsþættina Dancing …
Leikarinn og Raunveruleikastjarnan Harry Jowsey í tökum fyrir sjónvarpsþættina Dancing with the stars. Skjáskot/Instagram

Leik­ar­inn og raun­veru­leika­stjarn­an Harry Jows­ey, sem er lík­lega hve þekkt­ast­ur fyr­ir að koma fram í Net­flix-sjón­varpsþátt­un­um Too Hot To Handle, viður­kenn­ir að hann hafi verið drukk­inn mest all­an tím­ann á meðan tök­ur á raun­veru­leikaþátt­un­um Per­fect Match stóðu yfir. 

Í hlaðvarpsþætti sín­um Boyfriend Materieal seg­ir Jows­ey að hann muni ekki mikið eft­ir inn­komu sinni í serí­unni. Hann lýs­ir því að hann hafði verið edrú í meira en ár áður en hann féll þegar tök­ur hóf­ust. Jows­ey seg­ir að á þeim tíma­punkti hafi hann verið að ganga í gegn­um mjög erfiða tíma og sár sam­bands­slit. Einnig sér hann sér eft­ir mörg­um heimsku­leg­um ákvörðum sem hann tók í þátt­un­um. 

Hann bæt­ir því við að í vill­unni þar sem tök­ur fóru fram hafi verið op­inn bar all­an sól­ar­hring­inn þar sem þátt­tak­end­ur gátu fengið sér eins mikið áfengi og þeim sýnd­ist. „Ég áttaði mig á því að það gæti leynst alkó­hólismi í mér sem fékk að brjót­ast út á hverj­um degi,“ seg­ir Jows­ey.

Í Per­fect Match reyndi hann að slá sér fyrst upp með Elys Hutchinson og síðanJessica Vestal en allt fór í vaskinn hjá þeim þegar hann var sakaður um að kyssa aðra konu. 

The Tab

mbl.is