BÍ vill að yfirvöld rannsaki árásina gaumgæfilega

Netárás á Árvakur | 24. júní 2024

BÍ vill að yfirvöld rannsaki árásina gaumgæfilega

Stjórn Blaðamannafélags Íslands vill að íslensk yfirvöld rannsaki gaumgæfilega netárás sem var gerð á tölvukerfi Árvakurs, út­gáfu­fé­lags Morg­un­blaðsins, mbl.is og K100.

BÍ vill að yfirvöld rannsaki árásina gaumgæfilega

Netárás á Árvakur | 24. júní 2024

Sigríður Dögg Auðunsdóttir er formaður Blaðamannafélags Íslands.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir er formaður Blaðamannafélags Íslands. Samsett mynd/Aðsend/mbl.is/Árni Sæberg

Stjórn Blaðamanna­fé­lags Íslands vill að ís­lensk yf­ir­völd rann­saki gaum­gæfi­lega netárás sem var gerð á tölvu­kerfi Árvak­urs, út­gáfu­fé­lags Morg­un­blaðsins, mbl.is og K100.

Stjórn Blaðamanna­fé­lags Íslands vill að ís­lensk yf­ir­völd rann­saki gaum­gæfi­lega netárás sem var gerð á tölvu­kerfi Árvak­urs, út­gáfu­fé­lags Morg­un­blaðsins, mbl.is og K100.

Stjórn BÍ fundaði í dag og greindi svo frá þessu í til­kynn­ingu á vef fé­lags­ins. 

„BÍ treyst­ir því að yf­ir­völd rann­saki árás­ina gaum­gæfi­lega í ljósi al­var­leika henn­ar og geri ráðstaf­an­ir til að verja sér­stak­lega mik­il­væga sam­fé­lags­lega innviði á borð við fréttamiðla,“ seg­ir meðal ann­ars í til­kynn­ing­unni.

At­laga að lýðræðinu

Sig­ríður Dögg Auðuns­dótt­ir, formaður BÍ, sagði í færslu sem hún birti á Face­book í morg­un að tölvu­árás­in væri at­laga að lýðræðinu.

Gríðarlegt magn gagna var tekið í gísl­ingu í árás­inni. Aft­ur á móti bend­ir ekk­ert til þess að gögn­un­um hafi verið lekið.

mbl.is