Komust ekki í upplýsingar um áskrifendur

Netárás á Árvakur | 24. júní 2024

Komust ekki í upplýsingar um áskrifendur

Upplýsingar um áskrifendur Morgunblaðsins og aðra viðskiptavini Árvakurs voru ekki teknar í gíslingu í netárás sem gerð var á útgáfufélagið í gær.

Komust ekki í upplýsingar um áskrifendur

Netárás á Árvakur | 24. júní 2024

„Við erum að vinna hörðum höndum að því að koma …
„Við erum að vinna hörðum höndum að því að koma þessu í lag,“ segir Úlfar. mbl.is/Árni Sæberg

Upp­lýs­ing­ar um áskrif­end­ur Morg­un­blaðsins og aðra viðskipta­vini Árvak­urs voru ekki tekn­ar í gísl­ingu í netárás sem gerð var á út­gáfu­fé­lagið í gær.

Upp­lýs­ing­ar um áskrif­end­ur Morg­un­blaðsins og aðra viðskipta­vini Árvak­urs voru ekki tekn­ar í gísl­ingu í netárás sem gerð var á út­gáfu­fé­lagið í gær.

Árvak­ur, út­gáfu­fé­lag Morg­un­blaðsins, varð fyr­ir stór­felldri netárás í gær með þeim af­leiðing­um að gríðarlegt magn gagna var tekið í gísl­ingu. Aft­ur á móti bend­ir ekk­ert til þess að gögn­un­um hafi verið lekið.

Úlfar Ragn­ars­son, for­stöðumaður upp­lýs­inga­tækni­sviðs Árvak­urs, seg­ir við mbl.is að árás­in hafi hvorki beinst að áskrift­ar­kerfi né bók­un­ar­kerfi Árvak­urs.

Það þýði að upp­lýs­ing­ar um viðskipta­vini fyr­ir­tæk­is­ins, þ.á.m. áskrif­end­ur Morg­un­blaðsins, hafi ekki verið tekn­ar í gísl­ingu. Hakk­ar­arn­ir hafi held­ur ekki kom­ist í greiðslu­upp­lýs­ing­ar.

mbl.is lá niðri í þrjá tíma

Aft­ur á móti var stór hluti gagna í innra tölvu­kerfi Árvak­urs læst­ur og dul­kóðaður. Úlfar seg­ir að unnið sé að því að end­ur­heimta gögn­in. Ekk­ert bend­ir til þess að netþrjót­arn­ir hafi kom­ist í tölvu­pósta starfs­manna.

„Við erum að vinna hörðum hönd­um að því að koma þessu í lag,“ seg­ir Úlfar.

Netárás gær­dags­ins hef­ur haft nokk­ur áhrif á starf­semi Árvak­urs. Þegar upp komst um árás­ina var gripið til þeirra ör­ygg­is­ráðstaf­anna að taka frétta­vef­inn mbl.is niður og lá hann niðri frá um kl. 17 til um kl. 20.

Samt kom Morg­un­blaðið út í morg­un, þó ekki nema í 16 blaðsíðum.

Réðst líka á HR og Brim­borg

Unnið er að því að hreinsa nær all­ar vinnu­tölv­ur í Há­deg­is­mó­um og hafa marg­ir starfs­menn á meðan unnið í eig­in far­tölv­um.

Rúss­nesk­ur hakk­ara­hóp­ur stend­ur að árás­inni en sami hóp­ur hef­ur áður ráðist á tölvu­kerfi bílaum­boðsins Brim­borg­ar­ og Há­skól­ans í Reykja­vík.

Enn er ekki ljóst hvernig með hvaða hætti glæpa­menn­irn­ir smeygðu sér inn í kerf­in en fyr­ir ligg­ur að hóp­ar sem þessi eru úrræðagóðir.

Hægt er að ná í frétta­deild mbl.is í gegn­um tölvu­póst­fangið frett­ir@mbl.is og í síma 669-1200. Þá er hægt að senda inn grein­ar og minn­ing­ar­grein­ar í gegn­um inn­send­ing­ar­kerfi á vefn­um.

mbl.is