Hjónaband Bens Afflecks og Jennifer Lopez virðist enn vera i tómu tjóni. Hjónin hafa hingað til sést með giftingahringana á sér en breyting varð á þegar leikarinn sást án hrings á laugardaginn.

Affleck var að fá sér hádegismat með dóttur sinni Violet þegar hann var myndaður án giftingahrings að því fram kemur á vef Page Six. Affleck á hina 18 ára gömlu Violet með fyrrverandi eiginkonu sinni, leikkonunni Jennifer Garner, en þau eiga tvö börn að auki. Affleck er einnig stjúppabbi tveggja barna Jennifer Lopez.
Lopez var áhyggjulaus í síðustu viku en hún skrapp til Ítalíu án eiginmanns síns. Ýtir ferðin undir skilnaðarorðróminn. Hvorugt var heima um helgina þar sem Lopez var á Ítalíu en Affleck heldur til í leiguhúsnæði nálægt húsi þeirra í Beverly Hills.