Raunveruleikastjarna fannst látin í fangaklefa

Poppkúltúr | 2. júlí 2024

Raunveruleikastjarna fannst látin í fangaklefa

Raunveruleikastjarnan Andrew Jury fannst látin í fangaklefa aðeins örfáum klukkustundum áður en hún átti að mæta fyrir dóm.

Raunveruleikastjarna fannst látin í fangaklefa

Poppkúltúr | 2. júlí 2024

Andrew Jury.
Andrew Jury. Skjáskot/IMDb

Raun­veru­leika­stjarn­an Andrew Jury fannst lát­in í fanga­klefa aðeins ör­fá­um klukku­stund­um áður en hún átti að mæta fyr­ir dóm.

Raun­veru­leika­stjarn­an Andrew Jury fannst lát­in í fanga­klefa aðeins ör­fá­um klukku­stund­um áður en hún átti að mæta fyr­ir dóm.

Jury, sem var 33 ára, varð fræg­ur fyr­ir þátt­töku sína í ný­sjá­lensku út­gáfu raun­veru­leikaþátt­araðar­inn­ar Married at First Sig­ht árið 2017. Hann var meðal 12 kepp­enda í leit að ást­inni. 

Jury fannst lát­inn á fimmtu­dags­morg­un í Mount Eden-fang­els­inu í Auckland en þar hafði hann setið inni síðan 2. apríl. Hann var ákærður fyr­ir lík­ams­árás, ólög­leg­an vopna­b­urð og hót­an­ir. 

Dánar­or­sök Jury er óstaðfest en að sögn lög­reglu er and­látið ekki talið grun­sam­legt. 

mbl.is