Hitamet slegið í kjölfar skógarelda

Loftslagsvá | 8. júlí 2024

Hitamet slegið í kjölfar skógarelda

Tæplega 1.300 skógareldar urðu á Grikklandi í júní og hefur hiti þar aldrei mælst jafn hár í júní. Skógareldar voru aðeins 533 talsins í sama mánuði síðasta árs.

Hitamet slegið í kjölfar skógarelda

Loftslagsvá | 8. júlí 2024

Skógareldar á Grikklandi voru miklu fleiri í júní í ár …
Skógareldar á Grikklandi voru miklu fleiri í júní í ár en á síðasta ári. AFP

Tæp­lega 1.300 skógar­eld­ar urðu á Grikklandi í júní og hef­ur hiti þar aldrei mælst jafn hár í júní. Skógar­eld­ar voru aðeins 533 tals­ins í sama mánuði síðasta árs.

Tæp­lega 1.300 skógar­eld­ar urðu á Grikklandi í júní og hef­ur hiti þar aldrei mælst jafn hár í júní. Skógar­eld­ar voru aðeins 533 tals­ins í sama mánuði síðasta árs.

„Þessi júní­mánuður var sá heit­asti síðan mæl­ing­ar hóf­ust og spá­in fyr­ir júlí er svipuð,“ er haft eft­ir tals­manni grísku rík­is­stjórn­ar­inn­ar, Pav­los Mar­inak­is, í um­fjöll­un AFP-frétta­veit­unn­ar.

Rúm tvö­föld­un á skógar­eld­um

Skógar­eld­ar voru í júní 1.281 tals­ins, sem er rúm tvö­föld­un á fjölda bruna sem urðu í júní í fyrra. Rekja má þessa fjölg­un á skógar­eld­um til veðurfars í land­inu, en aldrei hef­ur hita­bylgja orðið jafn snemma á ár­inu og nú í ár.

Hef­ur hiti náð 44 stig­um í júní, þurrk­ur skapað kjöraðstæður fyr­ir bruna og kröft­ug­ar vind­hviður kynt eld­inn.

Bú­ist er við að hiti í land­inu verði hærri en 40 stig næstu daga en vís­inda­menn gera ráð fyr­ir tíðari hita­bylgj­um í kjöl­far lofts­lags­breyt­inga. Auk þess er áætlað að bylgj­urn­ar vari leng­ur og verði heit­ari en Grikk­ir hafa van­ist und­an­far­in ár.

mbl.is