Laufey nældi sér í bragðaref

Instagram | 8. júlí 2024

Laufey nældi sér í bragðaref

Eftir ansi annasama mánuði er stórstjarnan Laufey Lín Bing Jónsdóttir komin heim á klakann, tímabundið að vísu, til að njóta hvíldar og hressingar. Söngkonan hefur verið á heljarinnar tónleikaferðalagi, Bewitched: The Goddess Tour, um heiminn síðustu vikur og mánuði og heillað tónleikagesti upp úr skónum með fallegum söng og hljóðfæraleik.

Laufey nældi sér í bragðaref

Instagram | 8. júlí 2024

Fátt betra en bragðarefur!
Fátt betra en bragðarefur! Samsett mynd

Eft­ir ansi anna­sama mánuði er stór­stjarn­an Lauf­ey Lín Bing Jóns­dótt­ir kom­in heim á klak­ann, tíma­bundið að vísu, til að njóta hvíld­ar og hress­ing­ar. Söng­kon­an hef­ur verið á helj­ar­inn­ar tón­leika­ferðalagi, Bewitched: The Goddess Tour, um heim­inn síðustu vik­ur og mánuði og heillað tón­leika­gesti upp úr skón­um með fal­leg­um söng og hljóðfæra­leik.

Lauf­ey deildi skemmti­legri myndaseríu með fylgj­end­um sín­um á In­sta­gram í gær­dag og gaf þar ör­litla inn­sýn inn í lífið á Íslandi. Söng­kon­an kíkti aðeins á stemn­ing­una í miðbæ Reykja­vík­ur ásamt vin­kon­um sín­um og heim­sótti einnig Ísbúð Vest­ur­bæj­ar þar sem hún nældi sér í góm­sæt­an bragðaref. 

Allt frá því að Lauf­ey hreppti Grammy-verðlaun­in í flokki hefðbund­inna söng-poppp­latna (e. tra­diti­onal pop vocal alb­um) í byrj­un fe­brú­ar hef­ur hún haft heil­mikið fyr­ir stafni. Söng­kon­an hef­ur meðal ann­ars setið fyr­ir á forsíðum helstu tísku­tíma­rita í heimi og flutt tónlist sína í vin­sæl­um spjallþátt­um og stór­um tón­leika­höll­um.

Lauf­ey var einnig meðal gesta á hinum virta Met-Gala viðburði sem fram fór á Metropolit­an-safn­inu í New York í maí. Söng­kon­an klædd­ist bleik­um síðkjól frá Pra­bal Gur­ung.

View this post on In­sta­gram

A post shared by lauf­ey (@lauf­ey)

mbl.is