„Markmiðið með þessari nýju viðbót er að efla félagsleg tengsl“

Allt fyrir ástina | 16. júlí 2024

„Markmiðið með þessari nýju viðbót er að efla félagsleg tengsl“

Smitten, vinsælasta stefnumótaforrit Íslands, kynnir með stolti nýja viðbót við smáforritið sem gerir notendum kleift að para sig saman við vini og stofna sameiginlegan prófíl. Þessi stórsniðuga viðbót er heitið Duo. 

„Markmiðið með þessari nýju viðbót er að efla félagsleg tengsl“

Allt fyrir ástina | 16. júlí 2024

Smitten kynnir Duo til leiks.
Smitten kynnir Duo til leiks. Samsett mynd

Smitten, vin­sæl­asta stefnu­móta­for­rit Íslands, kynn­ir með stolti nýja viðbót við smá­for­ritið sem ger­ir not­end­um kleift að para sig sam­an við vini og stofna sam­eig­in­leg­an prófíl. Þessi stór­sniðuga viðbót er heitið Duo. 

Mark­miðið með þess­ari nýju viðbót er að efla fé­lags­leg tengsl og draga úr ein­mana­leika yngri kyn­slóða en ný­leg­ar rann­sókn­ir hafa sýnt að ungt fólk á aldr­in­um 16 til 24 ára upp­lif­ir ein­mana­leika meira en nokk­ur ann­ar ald­urs­hóp­ur. 

„Okk­ar stefna hef­ur alltaf verið að búa til skemmti­leg­asta stefnu­móta-appið fyr­ir ein­hleypa um all­an heim. Með Duo vilj­um við tvö­falda skemmt­un­ina með því að gera not­end­um kleift að hafa bestu vini sína með í upp­lif­un­inni,“ seg­ir Davíð Sím­on­ar­son, for­stjóri Smitten. 

Not­end­ur Smitten á Íslandi eru þeir fyrstu til að prófa Duo en á næstu dög­um mun Duo verða aðgengi­legt fyr­ir not­end­ur smá­for­rits­ins í Dan­mörku, Svíþjóð og Nor­egi. 

mbl.is