Hneykslaði brúðkaupsgesti með fatavali sínu

Kardashian | 17. júlí 2024

Hneykslaði brúðkaupsgesti með fatavali sínu

Kim Kardashian, raunveruleikastjarna og athafnakona, var meðal gesta í brúðkaupi indverska milljarðamæringsins Anant Ambani og Radhiku Merchant sem fór fram í Mumbai á Indlandi um helgina. Veisluhöldin, sem voru hin glæsilegustu, stóðu yfir í þrjá daga með tilheyrandi herlegheitum og íburði.

Hneykslaði brúðkaupsgesti með fatavali sínu

Kardashian | 17. júlí 2024

Samsett mynd

Kim Kar­dashi­an, raun­veru­leika­stjarna og at­hafna­kona, var meðal gesta í brúðkaupi ind­verska millj­arðamær­ings­ins An­ant Am­bani og Radhiku Merchant sem fór fram í Mumbai á Indlandi um helg­ina. Veislu­höld­in, sem voru hin glæsi­leg­ustu, stóðu yfir í þrjá daga með til­heyr­andi her­leg­heit­um og íburði.

Klæðnaður Kar­dashi­an vakti mikið um­tal og er sagður hafa hneykslað veislu­gesti og aðra viðstadda. Ástæða þess er sú að raun­veru­leika­stjarn­an kaus að klæðast rauðu frá toppi til táar á tvo af viðburðum helg­inn­ar, en sam­kvæmt hind­úa­trú og hefð er það lit­ur brúðar­inn­ar.

Á Indlandi klæðast ind­versk­ar brúðir rauðum lit á brúðkaups­dag­inn en þar í landi er lit­ur­inn tákn um hug­rekki, styrk og auð.

Kar­dashi­an, sem mætti ásamt syst­ur sinni, Khloé Kar­dashi­an, birti þó nokkr­ar færsl­ur á In­sta­gram-reikn­ingi sín­um sem sýndu frá hátíðar­höld­un­um og fékk yfir sig holskelfu af at­huga­semd­um í kjöl­farið þar sem marg­ir sökuðu hana um að stela at­hygli frá brúðinni. 

mbl.is