Katrín prinsessa af Wales kom fram opinberlega á sunnudaginn þegar hún afhenti Wimbledon-bikarinn í karlaflokki. Prinsessan var glæsileg í fjólubláum kjól en Karlotta dóttir hennar var með henni.

Þetta var í annað sinn sem Katrín kom fram opinberlega síðan um jólin. Katrín gekkst undir aðgerð á kviðarholi í janúar og var seinna greind með krabbamein.
Fjólublái kjóllinn sem Katrín klæddist var sérsaumaður á Katrínu og var frá breska merkinu Safiyaa. Kjóllinn kostaði 1.295 pund eða um 230 þúsund íslenskar krónur. Stuttermakjóllinn var tekinn saman með fallegum rykkingum fyrir ofan mittið. Pils kjólsins var hins vegar einfald A-laga pils.
Við kjólinn var Katrín með brúna tösku frá LK Bennett sem hún hefur átt í mörg ár. Hún valdi ljósa hæla úr safni sínu til þess að leyfa kjólnum að njóta sín.
Karlotta prinsessa klæddist bláum kjól með hvítum doppum. Kjóllinn er frá bandaríska merkinu Guess en hann kostaði 70 pund eða um 12.500 íslenskar krónur.