Rússar segjast hafa komið í veg fyrir að tvær bandarískar sprengjuflugvélar færu yfir í lofthelgi Rússa á Barentshafi.

Bandaríski herinn fer reglubundið í flug yfir alþjóðleg hafsvæði. Að þeirra sögn er um að ræða aðgerðir sem eru í samræmi við alþjóðalög.
Yfirvöld í Moskvu hafa hins vegar brugðist hart við þessum æfingum á síðustu mánuðum. Í júní vöruðu Rússar við því að flug bandarískra dróna á Svartahafi gæti leitt til „beinna“ átaka.
Í yfirlýsingu rússneska varnarmálaráðuneytisins sagði að orrustuþotur hersins hefðu komið í veg fyrir að flogið yrði inn í lofthelgi Rússlands.
Í yfirlýsingunni sagði að um væri að ræða bandarískar sprengjuflugvélar af gerðinni B-52H.
„Er rússnesku orrustuþoturnar nálguðust leiðréttu bandarísku sprengjuflugvélarnar stefnu sína og færðu sig frá landamærum Rússlands.“