Ekki von á frekari hlaupum að svo stöddu

Katla | 28. júlí 2024

Ekki von á frekari hlaupum að svo stöddu

Ef engin frekari skjálftavirkni eða hlaupórói mælist við Mýrdalsjökul er ekki von á frekari jökulhlaupum að svo stöddu. Veðurstofan mun þó halda áfram að vakta svæðið náið. 

Ekki von á frekari hlaupum að svo stöddu

Katla | 28. júlí 2024

Ekki er vitað hvað olli svo stóru hlaupi.
Ekki er vitað hvað olli svo stóru hlaupi. Ljósmynd/Sveinbjörn Darri Matthíasson

Ef eng­in frek­ari skjálfta­virkni eða hlaupórói mæl­ist við Mýr­dals­jök­ul er ekki von á frek­ari jök­ul­hlaup­um að svo stöddu. Veður­stof­an mun þó halda áfram að vakta svæðið náið. 

Ef eng­in frek­ari skjálfta­virkni eða hlaupórói mæl­ist við Mýr­dals­jök­ul er ekki von á frek­ari jök­ul­hlaup­um að svo stöddu. Veður­stof­an mun þó halda áfram að vakta svæðið náið. 

Þetta seg­ir í til­kynn­ingu frá Veður­stofu Íslands. 

Vatns­hæð og raf­leiðni í Skálm hef­ur minnkað tals­vert síðan í gær og held­ur áfram að draga úr áhrif­um hlaups­ins sem kom und­an Sand­fells­jökli í aust­an­verðum Mýr­dals­jökli sem hófst í gær. Í til­kynn­ing­unni seg­ir að það muni þó taka nokkra daga þangað til að rennslið í Skálm kemst í eðli­legt horf miðað við árs­tíma. 

Þá sjást eng­in merki um hlaup­vatn í Jök­ulsá á Sól­heimas­andi eða Múla­kvísl. 

Óljóst hvað olli svo stóru hlaupi

Hlaupið sem varð í gær er talið tals­vert stærra en það sem varð í Múla­kvísl árið 2011 og er um óvenju stórt hlaup að ræða miðað við venju­bund­in hlaup á þess­um slóðum. 

Í til­kynn­ingu frá Veður­stof­unni seg­ir að ekki sé hægt að full­yrða hvað olli því að þetta magn af hlaup­vatni kom und­an jökl­in­um. Vís­inda­menn munu nú fara yfir þau gögn sem hafa safn­ast til að fá betri mynd af því hvað or­sakaði svo stórt hlaup. 

Þá seg­ir að eng­in merki í gögn­um Veður­stof­unn­ar bendi til þess að eld­gos hafi or­sakað jök­ul­hlaupið. 

mbl.is