Ferðamenn ekki meðvitaðir um lokunina

Katla | 28. júlí 2024

Margir ekki meðvitaðir um lokunina

Margir ferðamenn hafa ætlað að aka hringveginn milli Vík­ur og Kirkju­bæj­ark­laust­urs í dag en ekki vitað að vegurinn sé lokaður.

Margir ekki meðvitaðir um lokunina

Katla | 28. júlí 2024

Pétur hefur rætt við marga ferðamenn í dag.
Pétur hefur rætt við marga ferðamenn í dag. mbl.is/Hákon

Marg­ir ferðamenn hafa ætlað að aka hring­veg­inn milli Vík­ur og Kirkju­bæj­ark­laust­urs í dag en ekki vitað að veg­ur­inn sé lokaður.

Marg­ir ferðamenn hafa ætlað að aka hring­veg­inn milli Vík­ur og Kirkju­bæj­ark­laust­urs í dag en ekki vitað að veg­ur­inn sé lokaður.

„Það er eig­in­lega bú­inn að vera stans­laus straum­ur,“ seg­ir Pét­ur Eyj­ólfs­son, sem er í björg­un­ar­sveit­inni Víkverja, í sam­tali við mbl.is.

Mynd frá vettvangi.
Mynd frá vett­vangi. mbl.is/​Há­kon

Bú­ist er við að hægt verði að opna fyr­ir um­ferð um veg­inn seinni part­inn í dag eða í kvöld. Skemmd­ir urðu á veg­in­um vegna jök­uls­hlaups sem hófst í Mýr­dals­jökli í gær.

Nú er unnið að viðgerð, en um 20-30 manns koma að verk­inu.

mbl.is