Íslandsvinurinn Gordon Ramsay landaði stórum laxi

Stjörnur á ferð og flugi | 29. júlí 2024

Íslandsvinurinn Gordon Ramsay landaði stórum laxi

Ísland er í miklu uppáhaldi hjá breska stjörnukokkinum Gordon Ramsay. Hann hefur heimsótt landið oftar en einu sinni og talar ávallt fallega um upplifun sína af landi og þjóð.

Íslandsvinurinn Gordon Ramsay landaði stórum laxi

Stjörnur á ferð og flugi | 29. júlí 2024

Þetta er stór lax.
Þetta er stór lax. Skjáskot/Instagram

Ísland er í miklu upp­á­haldi hjá breska stjörnu­kokk­in­um Gor­don Ramsay. Hann hef­ur heim­sótt landið oft­ar en einu sinni og tal­ar ávallt fal­lega um upp­lif­un sína af landi og þjóð.

Ísland er í miklu upp­á­haldi hjá breska stjörnu­kokk­in­um Gor­don Ramsay. Hann hef­ur heim­sótt landið oft­ar en einu sinni og tal­ar ávallt fal­lega um upp­lif­un sína af landi og þjóð.

Stjörnu­kokk­ur­inn deildi skemmti­legri myndaseríu á In­sta­gram-síðu sinni fyrr í dag þar sem hann meðal ann­ars montaði sig af stærðar­inn­ar laxi sem hann landaði. 

„Ótrú­leg vika á Íslandi! Og já, ég veiddi stærsta lax­inn á þessu ári,“ skrifaði Ramsay við færsl­una. 

View this post on In­sta­gram

A post shared by Gor­don Ramsay (@gor­dongram)

Ramsay birti einnig tvær mynd­ir frá veit­ingastaðnum OTO á In­sta­gram Story. Hann hrósaði matn­um og þjón­ust­unni í há­stert. Er þetta annað árið í röð sem Ramsay snæðir á veit­ingastaðnum. 

Stjörnu­kokk­ur­inn var sér­stak­lega hrif­inn af hum­ar capp­ell­etti. 

Ramsay er mjög hrifinn af matnum á OTO.
Ramsay er mjög hrif­inn af matn­um á OTO. Skjá­skot/​In­sta­gram
mbl.is