Segir bændur í Álftaveri vilja varnargarða

Katla | 30. júlí 2024

Segir bændur í Álftaveri vilja varnargarða

„Já þetta hefur gríðarleg áhrif. Þetta fer mjög illa með beitilönd. Það er mikill framburður alltaf frá jöklum í svona hlaupum sem leggst yfir landið þó að vatnið þorni,“ segir Páll Eggertsson, bóndi á Mýrum í Álftaveri, um áhrif jökulhlaupsins sem varð um helgina.

Segir bændur í Álftaveri vilja varnargarða

Katla | 30. júlí 2024

Jökulhlaupið hófst á laugardag.
Jökulhlaupið hófst á laugardag. Ljósmyndir/Seinbjörn Darri Matthíasson

„Já þetta hef­ur gríðarleg áhrif. Þetta fer mjög illa með beiti­lönd. Það er mik­ill framb­urður alltaf frá jökl­um í svona hlaup­um sem leggst yfir landið þó að vatnið þorni,“ seg­ir Páll Eggerts­son, bóndi á Mýr­um í Álfta­veri, um áhrif jök­ul­hlaups­ins sem varð um helg­ina.

„Já þetta hef­ur gríðarleg áhrif. Þetta fer mjög illa með beiti­lönd. Það er mik­ill framb­urður alltaf frá jökl­um í svona hlaup­um sem leggst yfir landið þó að vatnið þorni,“ seg­ir Páll Eggerts­son, bóndi á Mýr­um í Álfta­veri, um áhrif jök­ul­hlaups­ins sem varð um helg­ina.

Tel­ur hann að byggja þurfi varn­argarða á svæðinu.

Páll seg­ir að hlaupið hafi runnið meðfram landi sínu og að streng­ur í ljós­leiðara hans hafi slitnað og er hann enn ekki kom­inn í lag.

Kveðst hann að öðru leyti hafa sloppið ágæt­lega en að áhrif­in víðast hvar séu þó mik­il.

„Þetta auðvitað hef­ur náð að renna inn á tún og svo hef­ur útjörðin skemmst al­veg gríðarlega,“ seg­ir Páll og bæt­ir við að hlaupið hafi rifið upp gróður og skilið eft­ir sig drullu og aur yfir gró­in lönd. 

Brú­in ekki byggð fyr­ir hlaup úr Kötlu

Nefn­ir Páll að það hefði þurft að fara í fram­kvæmd­ir á svæðinu fyr­ir löngu síðan til að reyna að koma í veg fyr­ir eyðilegg­ing­una sem fylg­ir stór­um jök­ul­hlaup­um.

Árfar­veg­ur Lei­rár hafi breyst fyr­ir um 15 árum og ligg­ur hún nú út í Skálm. Ekk­ert hafi verið gert til að veita ánni aft­ur í sinn upp­runa­lega far­veg. 

Hlaupið á laug­ar­dag hafi síðan komið niður Lei­rá, sem renn­ur und­an Kötlu­jökl­in­um, og í Skálm.

„Eins og brú­in yfir Skálm, hún er byggð fyr­ir 30 árum, 1994 minn­ir mig, og hún var ekk­ert byggð fyr­ir það að taka við vatn­inu úr Lei­rá líka.“

Sam­fé­lagið vill varn­argarða

„Okk­ur í Álfta­ver­inu finnst mjög nauðsyn­legt að það séu sett­ir varn­argarðar þannig að Lei­ránni sé haldið í sín­um gamla far­vegi og hún er nátt­úru­lega búin að skemma mikið af góðum beiti­lönd­um núna. Bæði nátt­úru­lega all­mest núna en líka á und­an­förn­um árum því hún er búin að flækj­ast þarna um land sem ekki hef­ur verið vatn á ára­tug­um sam­an eða aldrei.“

Hef­ur það aldrei verið til umræðu?

„Jú jú það hef­ur verið til umræðu en þeir fram­kvæmdaaðilar eins og Land­græðslan og Vega­gerð hafa ekki viljað taka þessi verk­efni að sér.“

Ein­hver ástæða fyr­ir því gef­in?

„Senni­lega pen­inga­skort­ur. Ég held þeir kenni því alltaf um.“ 

Frá vinnu við hringveginn á sunnudag. Eins og sést var …
Frá vinnu við hring­veg­inn á sunnu­dag. Eins og sést var framb­urður jök­ul­hlaups­ins mik­ill. mbl.is/​Há­kon
mbl.is