Sérfræðingar Veðurstofunnar komnir austur

Katla | 30. júlí 2024

Sérfræðingar Veðurstofunnar komnir austur

„Við erum að reyna að meta hvernig áin rann hérna í flóðinu. Svo eftir það þá vonandi getum við reynt að leggja mat á rennslið sem var í flóðinu,“ segir Gunnar Sigurðsson, fagstjóri vatnamælinga hjá Veðurstofu Íslands.

Sérfræðingar Veðurstofunnar komnir austur

Katla | 30. júlí 2024

Gunnar Sigurðsson og Hákon Halldórsson, sérfræðingar í mælirennsli við Skálm …
Gunnar Sigurðsson og Hákon Halldórsson, sérfræðingar í mælirennsli við Skálm í dag. mbl.is/Jónas Erlendsson

„Við erum að reyna að meta hvernig áin rann hérna í flóðinu. Svo eft­ir það þá von­andi get­um við reynt að leggja mat á rennslið sem var í flóðinu,“ seg­ir Gunn­ar Sig­urðsson, fag­stjóri vatna­mæl­inga hjá Veður­stofu Íslands.

Var hann mætt­ur, ásamt sam­starfs­fé­laga sín­um Há­koni Hall­dórs­syni, fyrr í dag í vatna­mæl­ing­ar við Skálm­ar­brú þar sem jök­ul­hlaup varð á laug­ar­dag.

Leggja mat á far­veg­inn

„Við vit­um nátt­úru­lega hvar vatnið fór upp á veg­inn, við erum bara að mæla hæðina á veg­in­um og hæðina á flóðflæðinu svo mæl­um við dýpið í ánni og reyn­um að gera þetta eins vel og við get­um,“ seg­ir Gunn­ar og bæt­ir við:

„Þetta er til að leggja mat á far­veg­inn sem að áin rann hér um. Ef við höf­um sæmi­legt mat á hon­um þá get­um við von­andi reiknað rennslið með ein­hverri ná­kvæmni.“

Nefn­ir Gunn­ar að tek­in verði vatns­sýni og mynd­ir. Þá munu þeir einnig mæla rennslið í Skálm eins og það er núna.

mbl.is