„Það er bara allt á fullu“

Katla | 30. júlí 2024

„Það er bara allt á fullu“

„Ég er að stýra umferð hérna og gera allt í einu,“ segir Ágúst Freyr Bjartmarsson, yfirverkstjóri Vegagerðarinnar í Vík í Mýrdal, í samtali við mbl.is, inntur eftir stöðu mála á Hringveginum þar sem töluvert tjón varð vegna jökulhlaups sem hófst í Mýrdalsjökli á laugardaginn.

„Það er bara allt á fullu“

Katla | 30. júlí 2024

Tjónið á veginum er umtalsvert eins og sést á þessari …
Tjónið á veginum er umtalsvert eins og sést á þessari mynd sem tekin var á sunnudaginn. mbl.is/Hákon

„Ég er að stýra um­ferð hérna og gera allt í einu,“ seg­ir Ágúst Freyr Bjart­mars­son, yf­ir­verk­stjóri Vega­gerðar­inn­ar í Vík í Mýr­dal, í sam­tali við mbl.is, innt­ur eft­ir stöðu mála á Hring­veg­in­um þar sem tölu­vert tjón varð vegna jök­ul­hlaups sem hófst í Mýr­dals­jökli á laug­ar­dag­inn.

„Ég er að stýra um­ferð hérna og gera allt í einu,“ seg­ir Ágúst Freyr Bjart­mars­son, yf­ir­verk­stjóri Vega­gerðar­inn­ar í Vík í Mýr­dal, í sam­tali við mbl.is, innt­ur eft­ir stöðu mála á Hring­veg­in­um þar sem tölu­vert tjón varð vegna jök­ul­hlaups sem hófst í Mýr­dals­jökli á laug­ar­dag­inn.

„Það er bara allt á fullu, það er það eina sem ég get sagt. Það er bara verið að keyra í og stýra um­ferð og halda öllu gang­andi,“ held­ur verk­stjór­inn áfram og auðheyrt á um­hverf­is­hljóðum að hann er stadd­ur í miðri hringiðu at­b­urða á svæðinu.

Ágúst Freyr Bjartmarsson, yfirverkstjóri Vegagerðarinnar á Vík, er á vettvangi …
Ágúst Freyr Bjart­mars­son, yf­ir­verk­stjóri Vega­gerðar­inn­ar á Vík, er á vett­vangi viðgerðar á Þjóðvegi 1 eft­ir jök­ul­hlaupið á laug­ar­dag­inn. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Mik­il um­ferð

„Þetta geng­ur bara mjög vel, það er bara svo mik­il um­ferð og það er aðallega verið að stýra henni svo hún trufli ekki vinnu­flokk­ana. Við þurf­um bara að láta þetta vinna sam­an,“ seg­ir Ágúst.

Aðspurður lýk­ur hann máli sínu með því að dag­ur­inn fram und­an verði með ná­kvæm­lega því sniði sem nú sé, verið sé að keyra efni á full­um dampi í veg­inn þar sem hann varð fyr­ir tjóni er óblíð nátt­úru­öfl­in fóru um hann hönd­um.

Veg­ur­inn á flóðasvæðinu við Skálm er enn ein­breiður og því ein­stefna á þeim kafla, sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá Vega­gerðinni. Um­ferð er þar stýrt og eru veg­far­end­ur beðnir um að aka var­lega.

mbl.is