Ljósleiðari enn raskaður eftir jökulhlaup í Skálm

Katla | 31. júlí 2024

Ljósleiðari enn raskaður eftir jökulhlaup í Skálm

Unnið er að viðgerðum eftir að röskun varð á ljósleiðarastreng um helgina þegar að Mýrdalsjökull hljóp fram í ána Skálm.

Ljósleiðari enn raskaður eftir jökulhlaup í Skálm

Katla | 31. júlí 2024

Vatn úr jökulhlaupinu lagði mikið álag á ljósleiðarastreng á svæðinu.
Vatn úr jökulhlaupinu lagði mikið álag á ljósleiðarastreng á svæðinu. mbl.is/Hákon

Unnið er að viðgerðum eft­ir að rösk­un varð á ljós­leiðara­streng um helg­ina þegar að Mýr­dals­jök­ull hljóp fram í ána Skálm.

Unnið er að viðgerðum eft­ir að rösk­un varð á ljós­leiðara­streng um helg­ina þegar að Mýr­dals­jök­ull hljóp fram í ána Skálm.

Stærðar­inn­ar jök­ul­hlaup, upp á allt að þúsund rúm­metra á sek­úndu, hófst úr Mýr­dals­jökli á laug­ar­dag og flóð úr jökl­in­um skemmdi um 700 metra veg­kafla á hring­veg­in­um.

Atli Stefán Yngva­son, sér­fræðing­ur hjá Mílu, út­skýr­ir í sam­tali við mbl.is að vatn úr jök­ul­hlaup­inu hafi lagt mikið álag á ljós­leiðara­streng á svæðinu, sem hafði til­heyr­andi áhrif á sam­bönd Mílu í kring­um Kirkju­bæj­arklaust­ur og ná­grenni.

„Við það að slitna“

„Það er eins og hann væri við það að slitna,“ seg­ir Atli en streng­ur­inn slitnaði bless­un­ar­lega ekki. „[Álagið] veld­ur svo­kallaðri deyf­ingu sem dreg­ur öll gæðin niður á ljós­leiðar­an­um svæðinu.“

Hann seg­ir að mestra áhrifa gæti á Kirkju­bæj­arklaustri en kveður áhrif­in ann­ars minni­hátt­ar.

Í gær lauk viðgerðum á einu svæði þar sem streng­ur­inn varð fyr­ir hnjaski, að sögn Atla. Aft­ur á móti eigi enn eigi eft­ir að klára viðgerðir í Ásum, en það hef­ur reynst erfitt vegna vatns­magns.

„Þegar því lýk­ur ætti kerfið að vera komið á góðan stað.“

mbl.is