Óvissa mun ríkja fram að hausti

Katla | 31. júlí 2024

Óvissa mun ríkja fram að hausti

Bíða verður fram að hausti til að vita nákvæmlega hve mikið sauðfé jökulhlaupið tók með sér er það streymdi frá Mýrdalsjökli yfir tún og lönd á laugardag.

Óvissa mun ríkja fram að hausti

Katla | 31. júlí 2024

Jökulhlaup hófst á laugardag í Skálm aust­an Mýr­dals­jök­uls.
Jökulhlaup hófst á laugardag í Skálm aust­an Mýr­dals­jök­uls. Ljósmynd/Sveinbjörn Darri Matthíasson

Bíða verður fram að hausti til að vita ná­kvæm­lega hve mikið sauðfé jök­ul­hlaupið tók með sér er það streymdi frá Mýr­dals­jökli yfir tún og lönd á laug­ar­dag.

Bíða verður fram að hausti til að vita ná­kvæm­lega hve mikið sauðfé jök­ul­hlaupið tók með sér er það streymdi frá Mýr­dals­jökli yfir tún og lönd á laug­ar­dag.

Þor­berg­ur Jóns­son, bóndi á Holti í Álfta­veri, seg­ir í sam­tali við mbl.is að eitt tún og girðing­ar hafi skemmst hjá sér í hlaup­inu. Sé þá óvitað með hve mikið sauðfé gæti hafa orðið fyr­ir hlaup­inu og eng­in leið sé til þess að kanna það.

„Nei þetta er bara þannig svæði að það er ekki hægt. Það er bara allt á kafi í drullu og erfitt að fara um það,“ seg­ir Þor­berg­ur og bæt­ir við.

Svör­in fást eft­ir smala­mennsk­una

„Það sem lend­ir í flóðinu, það get­ur nátt­úru­lega bara horfið þannig það kem­ur nú ekk­ert senni­lega end­an­lega í ljós fyrr en farið er að skoða bók­hald eft­ir að allt fé er komið heim.“

Aðspurður seg­ir hann það vera í sept­em­ber eða októ­ber, eft­ir smala­mennsku.

Er þá bara óvissa fram að því?

„Það er óvissa fram að því. Maður veit ekk­ert hvort að hef­ur farið ein eða tvær eða tíu eða tutt­ugu. Það veit eng­inn,“ seg­ir Þor­berg­ur að lok­um.

Þorgbergur Jónsson.
Þorg­berg­ur Jóns­son. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is