Telur bændurna hafa rétt fyrir sér

Katla | 31. júlí 2024

Telur bændurna hafa rétt fyrir sér

„Ef það hefði verið gert þá, þá kannski væri allt gott núna en sú ákvörðun var ekki tekin af mér. Það voru einhverjir sem ákváðu að gera það ekki,“ segir Ágúst Freyr Bjartmarsson, yfirverkstjóri Vegagerðarinnar í Vík, um framkvæmdir sem bændur í Álftaveri vildu fá þegar Leirá breytti um farveg fyrir hartnær þrjátíu árum síðan.

Telur bændurna hafa rétt fyrir sér

Katla | 31. júlí 2024

Ágúst Freyr Bjartmarsson, yfirverkstjóri Vegagerðarinnar á Vík.
Ágúst Freyr Bjartmarsson, yfirverkstjóri Vegagerðarinnar á Vík. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Ef það hefði verið gert þá, þá kannski væri allt gott núna en sú ákvörðun var ekki tek­in af mér. Það voru ein­hverj­ir sem ákváðu að gera það ekki,“ seg­ir Ágúst Freyr Bjart­mars­son, yf­ir­verk­stjóri Vega­gerðar­inn­ar í Vík, um fram­kvæmd­ir sem bænd­ur í Álfta­veri vildu fá þegar Lei­rá breytti um far­veg fyr­ir hart­nær þrjá­tíu árum síðan.

„Ef það hefði verið gert þá, þá kannski væri allt gott núna en sú ákvörðun var ekki tek­in af mér. Það voru ein­hverj­ir sem ákváðu að gera það ekki,“ seg­ir Ágúst Freyr Bjart­mars­son, yf­ir­verk­stjóri Vega­gerðar­inn­ar í Vík, um fram­kvæmd­ir sem bænd­ur í Álfta­veri vildu fá þegar Lei­rá breytti um far­veg fyr­ir hart­nær þrjá­tíu árum síðan.

Telja bænd­urn­ir og Ágúst að skaði jök­ul­hlaups­ins á laug­ar­dag hefði verið minni hefði hlaupið fylgt upp­runa­leg­um far­vegi ár­inn­ar.

Í viðtali við mbl.is í gær sagði Jó­hann­es Giss­ur­ar­son, bóndi á Herjólfs­stöðum og odd­viti í Skaft­ár­hreppi, að leitað hafi verið á náðir stofn­anna lands­ins, nán­ar til­tekið Vega­gerðina og Land­græðslu, þegar breyt­ing­ar urðu á far­vegi Lei­rár og hún tók að færa sig ofan í Skálm­ina.

„Sú breyt­ing sem varð á Lei­rá á þeim tíma, hún verður þess vald­andi að hlaupið kem­ur niður í Skálm. Hlaupið sjálft kem­ur eft­ir far­vergi Lei­rár und­an jökli. Hefði hún verið við sinn venju­bundna far­veg þá hefði þetta ekki náð niður í Skálm held­ur upp í Hólmsá og þaðan í Kúðafljót,“ sagði Jó­hann­es í sam­tali við blaðamann í gær.

Ákvörðun tek­in að aðhaf­ast ekki í ánni

Í sam­tali við mbl.is seg­ir Águst að lík­lega sé þetta rétt hjá bónd­an­um.

„Ég veit það að ef þetta hefði farið í Hólmsá hefði verið minni skaði. Það er miklu stærri brú þar,“ seg­ir Ágúst og bæt­ir við.

„Þetta er ein­hver upp­lif­un sem þeir hafa í ára­tugi haft.“

Minn­ist yf­ir­verk­stjór­inn að umræður hafi verið á borði fyr­ir ein­hverj­um árum.

„Það höfðu verið umræður og þá var farið í ein­hverja skýrslu­gerð. Minn­ir eins og Magnús Tumi [Guðmunds­son jarðfræðing­ur] og þeir hafi verið í því. Eitt­hvað var það sem þeir ákváðu sem ég veit ekki al­veg hvað var.“

Seg­ir Águst að erfitt væri að fara í fram­kvæmd­irn­ar í dag. Hefði það öllu held­ur þurft að ger­ast fyr­ir um 20-30 árum. Seg­ir hann þó að mik­il­væg­asta í stöðunni í dag sé að ein­beita sér að hvað sé hægt að gera núna.

„Það er hvað get­um við gert núna sem ég vill finna út úr og sem að skipt­ir máli.“

mbl.is