Axel Hallkell og Sigrún Edda gift í 31 ár

Samskipti kynjanna | 1. ágúst 2024

Axel Hallkell og Sigrún Edda gift í 31 ár

Stórleikkonan Sigrún Edda Björgvinsdóttir og eiginmaður hennar, Axel Hallkell Jóhannesson leikmyndahönnuður og tónlistarmaður, fögnuðu 31 árs brúðkaupsafmæli sínu í gær, miðvikudaginn 31. júlí.

Axel Hallkell og Sigrún Edda gift í 31 ár

Samskipti kynjanna | 1. ágúst 2024

Axel Hallkell og Sigrún Edda brostu sínu breiðasta.
Axel Hallkell og Sigrún Edda brostu sínu breiðasta. Skjáskot/Facebook

Stór­leik­kon­an Sigrún Edda Björg­vins­dótt­ir og eig­inmaður henn­ar, Axel Hall­kell Jó­hann­es­son leik­mynda­hönnuður og tón­list­armaður, fögnuðu 31 árs brúðkaup­saf­mæli sínu í gær, miðviku­dag­inn 31. júlí.

Sigrún Edda og Axel Hall­kell, jafn­an kallaður Langi Seli, fögnuðu tíma­mót­un­um með ljúf­fengri máltíð á veit­ingastaðnum Apotek við Aust­ur­stræti. 

Skelltu þuml­un­um upp

Í til­efni dags­ins birti Sigrún Edda fal­lega mynd af þeim hjón­um á Face­book-síðu sinni. Hjón­in skelltu þuml­un­um upp fyr­ir mynda­tök­una enda miklu að fagna.

„Brúðkaup­saf­mæli nr. 31! 36 ár frá fyrsta kossi,“ skrifaði Sigrún Edda við færsl­una. 

Ham­ingjuósk­um hef­ur rignt yfir hjón­in og hafa ís­lensk­ar leik­hús­stjörn­ur á borð við Jó­hönnu Vig­dísi Arn­ar­dótt­ur, Val Frey Ein­ars­son og Gísla Örn Garðars­son óskað hjón­un­um til ham­ingju og við á Smartlandi ger­um það að sjálf­sögðu líka. 

mbl.is