Betra að búa í sitthvoru lagi

Allt fyrir ástina | 1. ágúst 2024

Betra að búa í sitthvoru lagi

Pandora Christie ákvað að best væri að hún og kærasti hennar flyttu í sundur. Hún fer yfir málin í pistli sínum á Stylist Magazine.

Betra að búa í sitthvoru lagi

Allt fyrir ástina | 1. ágúst 2024

Það er meiri áhersla lögð á gæðastundir ef maður býr …
Það er meiri áhersla lögð á gæðastundir ef maður býr ekki með makanum sínum. Getty images

Pandora Christie ákvað að best væri að hún og kær­asti henn­ar flyttu í sund­ur. Hún fer yfir mál­in í pistli sín­um á Styl­ist Magaz­ine.

Pandora Christie ákvað að best væri að hún og kær­asti henn­ar flyttu í sund­ur. Hún fer yfir mál­in í pistli sín­um á Styl­ist Magaz­ine.

„Vin­um mín­um finnst skrítið að ég og kærast­inn minn búum ekki sam­an. Við höf­um verið sam­an í sex ár og bjugg­um sam­an í þrjú ár. En fyr­ir einu og hálfu ári fattaði ég að við eydd­um meiri gæðatíma sam­an þegar við bjugg­um ekki sam­an. Eft­ir að við fór­um að búa voru ein­kennd­ust stund­irn­ar okk­ar sam­an af sjón­varps­glápi. Allt varð of þægi­legt. Það er ekk­ert að því en stund­um vill maður eitt­hvað meira.“

Ólík­ur lífs­stíll gerði út­slagið

„Við átt­um langt og gott sam­tal um hversu ólík­ur lífs­stíll­inn okk­ar var. Hann vill vaka fram á nótt en ekki ég. Ég vil fara út á djammið en vil samt vera kom­in heim um ell­efu leytið. Loks vil ég að íbúðin mín sé eins og vin í eyðimörk­inni. Ég vil geta komið heim og slakað á.“

„Kærast­inn er mjög snyrti­leg­ur en ég er gjörn á að safna drasli þannig að ég var stöðugt í stresskasti að taka til svo hann myndi ekki pirr­ast á mér.“

„Við ákváðum því að prófa að búa í sitt­hvoru lagi. Nú leggj­um við okk­ur fram um að hitt­ast og verja góðum tíma sam­an. Alltaf þegar við hitt­umst er eins og við séum enn í til­huga­líf­inu. Maður hef­ur sig til áður en við hitt­umst og allt er meira spenn­andi. Ég hef mikla trú á þessu fyr­ir­komu­lagi.“

Hug­rekki að prófa eitt­hvað nýtt

„Marg­ir halda að það hljóti að vera eitt­hvað að manni ef maður geti ekki búið með mak­an­um sín­um. En fólk þró­ast á mis­mun­andi hátt. Ég held að það að það sé fal­legt að hafa hug­rekki til þess að prófa nýtt fyr­ir­komu­lag og finna út hvað það er sem virk­ar fyr­ir þig og mak­ann þinn.“

„Við erum ekki í stór­um íbúðum en við höf­um efni á að halda úti tveim­ur íbúðum. Mér finnst að það ætti að vera auðveld­ara fyr­ir ungt fólk að haga lífi sínu eins og við ger­um. Að fólk geti haft efni á að búa sjálf­stætt. Ég vona að við sjá­um breyt­ingu í þá átt.“

„Fyr­ir fólk sem hef­ur ekki efni á að búa í sund­ur þá mæli ég með að það finni leiðir til þess að búa til pláss til að verja í ein­rúmi. Besta til­finn­ing­in er að finna fyr­ir söknuði. Það er svo sterk til­finn­ing. Svo er mik­il­vægt að halda áfram að fara á stefnu­mót, hafa sig til og fara út á lífið.“

mbl.is