Eðlilegt að skoða hvaða valkostir eru í stöðunni

Katla | 2. ágúst 2024

Eðlilegt að skoða hvaða valkostir eru í stöðunni

„Bændur í Álftaveri vildu að það yrði gert eitthvað en ég veit að Vegagerðin og fleiri, það vafðist fyrir mönnum hversu feikimikil vinna og mikið mannvirki þetta væri,“ segir Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands.

Eðlilegt að skoða hvaða valkostir eru í stöðunni

Katla | 2. ágúst 2024

Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands.
Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Bænd­ur í Álfta­veri vildu að það yrði gert eitt­hvað en ég veit að Vega­gerðin og fleiri, það vafðist fyr­ir mönn­um hversu feiki­mik­il vinna og mikið mann­virki þetta væri,“ seg­ir Magnús Tumi Guðmunds­son, pró­fess­or í jarðeðlis­fræði við Há­skóla Íslands.

„Bænd­ur í Álfta­veri vildu að það yrði gert eitt­hvað en ég veit að Vega­gerðin og fleiri, það vafðist fyr­ir mönn­um hversu feiki­mik­il vinna og mikið mann­virki þetta væri,“ seg­ir Magnús Tumi Guðmunds­son, pró­fess­or í jarðeðlis­fræði við Há­skóla Íslands.

Mikið hef­ur verið fjallað um jök­ul­hlaupið sem átti sér stað í Mýr­dals­jökli síðasta laug­ar­dag. Sam­töl mbl.is við bænd­ur á svæðinu hafa leitt í ljós að hlaupið fylgdi far­vegi Lei­rár sem myndaðist fyr­ir mörg­um árum. Hef­ur verið greint frá að heima­menn hafi varað við hinum nýja far­vegi og viljað fram­kvæmd­ir til að koma Lei­rá á sína gömlu leið.

At­b­urðarás sem hófst 1995

Magnús Tumi var einn þeirra sem skoðaði ána á sín­um tíma og út­skýr­ir í sam­tali við mbl.is hvernig at­b­urðarrás­in hófst sem síðar varð til þess að jök­ul­hlaupið rann yfir lönd Álfta­vers síðasta laug­ar­dag og skapaði mikið tjón. 

„Ég fór þarna í lok ág­úst 2009 inn að Lei­rá og sá þá hún var far­in að grein­ast og að vatn var byrjað að renna í átt­ina að Skálm. Síðan er Lei­rá að fullu kom­in í Skálm­ina árið 2012 og eng­ar efa­semd­ir um það.“

Seg­ir Magnús að hlaup sem höfðu komið úr jökl­in­um á ár­un­um 1995 og fram yfir árið 2000 höfðu þau áhrif að ör­keila byggðist upp sem var 7-8 metra þykk. Var það upp­bygg­ing ör­keil­unn­ar sem breytti far­vegi Lei­rár og beindi henni niður í Skálm.

„Svo byrjaði þetta að breyt­ast 2012 eða svo og þá byrjaði Lei­rá­in að grafa sig niður í þessa ör­keilu og hún var bú­inn að grafa sig 2-3 metra niður í hana 2013 og skömmu síðar voru þetta orðnir nokkr­ir metr­ar til viðbót­ar,“ seg­ir Magnús og bæt­ir við.

„Þannig ef að það ætti að búa til garð, sem að er ekk­ert úti­lokað, þá þyrfti hann að vera nokkr­ir kíló­metr­ar á lengd og marga metra hár sem er feiki­mikið mann­virki.“

Vert sé að skoða val­kosti

Spurður hvort vert sé að skoða fram­kvæmd­ir í ánni núna í dag til að forðast frek­ara tjón ef jök­ul­hlaup myndi hefjast aft­ur og renna eft­ir sama far­vegi seg­ir Magnús að eðli­legt sé að skoða það.

„Það er ómögu­legt að segja til um hvort þetta ger­ist aft­ur og það er bara eðli­legt mál að val­kost­irn­ir séu skoðaðir. Það er bara eðli­leg­ur hlut­ur að það sé skoðað hvaða val­kost­ir eru í stöðunni og hvað sé hægt að gera til að minnka áhrif af svona at­b­urðum og verja vegi og byggðir.“

mbl.is