Segjast hafa sökkt rússneskum kafbát

Úkraínustríðið | 3. ágúst 2024

Segjast hafa sökkt rússneskum kafbát

Úkraínski herinn segist hafa ráðist á og sökkt rússneskum kafbáti í höfn á Krímskaga. BBC greinir frá.

Segjast hafa sökkt rússneskum kafbát

Úkraínustríðið | 3. ágúst 2024

Rússneskur kafbátur.
Rússneskur kafbátur. Ljósmynd/Wikipedia.org

Úkraínski her­inn seg­ist hafa ráðist á og sökkt rúss­nesk­um kaf­báti í höfn á Krímskaga. BBC grein­ir frá.

Úkraínski her­inn seg­ist hafa ráðist á og sökkt rúss­nesk­um kaf­báti í höfn á Krímskaga. BBC grein­ir frá.

Kaf­bát­ur­inn var af gerð Rostov-on-don, árás­arkaf­báta og einn fjög­urra slíkra sem rúss­neski Svarta­hafs­flot­inn held­ur úti, en Úkraínu­menn segja lang­dræg flug­skeyti þeirra hafa grandað bátn­um, ásamt því að hafa eyðilagt fjög­ur S-400 loft­varn­ar­kerfi. Rúss­nesk yf­ir­völd hafa ekki tjáð sig um málið. 

Í frétt breska rík­is­út­varps­ins seg­ir að breska leyniþjón­ust­an hafi áður staðfest að sami kaf­bát­ur hafi orðið fyr­ir stór­felld­um skemmd­um, þegar Úkraínu­menn gerðu síðast árás á Sev­astópol-höfn í sept­em­ber 2022. 

Síðan Rúss­ar hófu inn­rás sína í Úkraínu í fe­brú­ar 2022 hef­ur Úkraínu­mönn­um tek­ist að sökkva eða valda var­an­leg­um skemmd­um á minnsta kosti 15 her­skip­um, þar á meðal flagg­skipi Svarta­hafs­flot­ans, Moskvu.

mbl.is