Kynlíf bætir heilsu mæðra

Mamman | 5. ágúst 2024

Kynlíf bætir heilsu mæðra

Mæður eiga það til að setja sig í síðasta sæti í amstri fjölskyldulífsins og þá getur streitan auðveldlega tekið yfir ef ekki er gætt að álagi. Nýjustu rannsóknir sýna að meira kynlíf bæti heilsu mæðra. 

Kynlíf bætir heilsu mæðra

Mamman | 5. ágúst 2024

mbl.is/Colurbox

Mæður eiga það til að setja sig í síðasta sæti í amstri fjöl­skyldu­lífs­ins og þá get­ur streit­an auðveld­lega tekið yfir ef ekki er gætt að álagi. Nýj­ustu rann­sókn­ir sýna að meira kyn­líf bæti heilsu mæðra. 

Mæður eiga það til að setja sig í síðasta sæti í amstri fjöl­skyldu­lífs­ins og þá get­ur streit­an auðveld­lega tekið yfir ef ekki er gætt að álagi. Nýj­ustu rann­sókn­ir sýna að meira kyn­líf bæti heilsu mæðra. 

Ný rann­sókn sem birt var á Nati­onal Li­brary of Medic­ine hef­ur leitt í ljós að kyn­líf geti dregið úr skaðleg­um streitu­ein­kenn­um mæðra ungra barna.

Niður­stöður sýndu að mæður sem stunduðu reglu­lega kyn­líf fram­leiddu meira af efna­skipta­horm­ón­um sem hafa meðal ann­ars áhrif á lík­amsþyngd og svefn. 

Lang­tíma­streita get­ur tekið sinn toll á lík­amann og aukið lík­ur á hjarta­sjúk­dóm­um, syk­ur­sýki, þung­lyndi, offitu og fleiri heilsu­kvill­um. 

Yoobin Park, nýdoktor við Kali­forn­íu­há­skól­ann stýrði rann­sókn­inni. Hún seg­ir að miðað við þær al­var­legu af­leiðing­ar sem krón­ísk streita get­ur haft þá sé það þess virði að skoða hvaða þætt­ir geti fyr­ir­byggt og dregið úr nei­kvæðum áhrif­um.

„Kyn­líf get­ur verið raun­hæf­ur val­kost­ur í þessu sam­hengi vegna streitu­los­andi áhrifa. Þar að auki hef­ur kyn­líf já­kvæð áhrif á svefn, en fólk und­ir miklu álagi þjá­ist oft af svefn­rösk­un­um. Eft­ir því sem við best vit­um hef­ur eng­in rann­sókn hingað til mælt hvort að kyn­líf sporni við líf­fræðileg­um af­leiðing­um streitu. Þessi rann­sókn var því til­rauna­verk­efni til að fylla í þessa eyðu,“ seg­ir Park. 

183 kon­ur tóku þátt í rann­sókn­inni

Þátt­tak­end­ur í rann­sókn­inni voru 183 kon­ur á aldr­in­um 20-25 ára sem áttu að minnsta kosti eitt barn á aldr­in­um 2-16 ára. Þær voru beðnar um að halda sér­staka dag­bók yfir tveggja ára tíma­bil, en í dag­bók­ina svöruðu þær spurn­ing­ar­lista í hverri viku um hversu oft í viku þær stunduðu kyn­líf, stunduðu ann­ars kon­ar hreyf­ingu, t.d. lík­ams­rækt, og hversu ham­ingju­sam­ar þær væru í ástar­sam­bönd­um sín­um. 

Sam­hliða dag­bók­ar­skrif­un­um fóru kon­urn­ar reglu­lega í blóðprufu þar sem horm­ón á borð við insúlín, leptín og ghrel­ín voru mæld.

„Í hnot­skurn sýndu niður­stöður okk­ar að skaðleg ein­kenni streitu minnkuðu tals­vert á meðal þeirra kvenna sem stunduðu meira kyn­líf,“ seg­ir Park.

Park seg­ist vona að niður­stöður rann­sókn­ar­inn­ar eigi eft­ir að hvetja fleiri vís­inda­menn til þess að öðlast meiri skiln­ing á já­kvæðum áhrif­um kyn­lífs. Hún tel­ur kosti þess að stunda kyn­líf jafn­vel vera meiri fyr­ir mæður en það að vera dug­leg að hreyfa sig og að vera í ham­ingju­sömu sam­bandi. 

New York Post

mbl.is