Mari Järsk sneri aftur á heimaslóðir

Ást | 12. ágúst 2024

Mari Järsk sneri aftur á heimaslóðir

Hlaupadrottningin Mari Järsk heimsótti SOS-barnaþorpið í Keila í Eistlandi nú á dögunum. Ástæða heimsóknarinnar var 30 ára afmæli barnaþorpanna þar í landi. 

Mari Järsk sneri aftur á heimaslóðir

Ást | 12. ágúst 2024

Mari ásamt konunni sem ól hana upp.
Mari ásamt konunni sem ól hana upp. Skjáskot/Instagram

Hlaupa­drottn­ing­in Mari Järsk heim­sótti SOS-barnaþorpið í Keila í Eistlandi nú á dög­un­um. Ástæða heim­sókn­ar­inn­ar var 30 ára af­mæli barnaþorp­anna þar í landi. 

Hlaupa­drottn­ing­in Mari Järsk heim­sótti SOS-barnaþorpið í Keila í Eistlandi nú á dög­un­um. Ástæða heim­sókn­ar­inn­ar var 30 ára af­mæli barnaþorp­anna þar í landi. 

Mari var aðeins sjö ára göm­ul þegar hún og sex systkini henn­ar voru tek­in af for­eldr­um sín­um árið 1995. Þau voru þá á aldr­in­um eins til fimmtán ára og fengu öll nýtt heim­ili í SOS-barnaþorp­inu í Keila sem þá var til­tölu­lega nýopnað. 

Mari birti ein­læga færslu á In­sta­gram-síðu sinni þar sem hún birti mynd­ir frá ferðalag­inu og þakkaði einnig kon­unni sem ól hana upp. 

„Fyr­ir rúm­lega 30 árum tók þessi fal­lega kona, „mamma“, ákvörðun um að taka að sér sjö börn og helga líf sitt í það + auka tveggja systra sem bætt­ust í hóp­inn. Ég mun aldrei geta þakkað henni nógu mikið fyr­ir það.

Í dag er hún auðvitað að ala upp önn­ur börn. Hún er ótrú­leg og ég mun aldrei geta sett mig í henn­ar aðstæður,“ skrifaði Mari við myndaserí­una.

View this post on In­sta­gram

A post shared by M A R I J Ä R S K (@mari_jaersk)

mbl.is