Vésteinn með ómissandi ráð

Ólympíuleikarnir í París | 12. ágúst 2024

Vésteinn með ómissandi ráð

Erna Sóley Gunnarsdóttir hafnaði í 20. sæti í kúluvarpi á Ólympíuleikunum í París, en um hennar fyrstu leika var að ræða. Fór keppnin fram á hinum glæsilega Stade de France sem rúmar um 80.000 áhorfendur.

Vésteinn með ómissandi ráð

Ólympíuleikarnir í París | 12. ágúst 2024

Vésteinn Hafsteinsson á Stade de France í París.
Vésteinn Hafsteinsson á Stade de France í París. Kristinn Magnússon

Erna Sól­ey Gunn­ars­dótt­ir hafnaði í 20. sæti í kúlu­varpi á Ólymp­íu­leik­un­um í Par­ís, en um henn­ar fyrstu leika var að ræða. Fór keppn­in fram á hinum glæsi­lega Stade de France sem rúm­ar um 80.000 áhorf­end­ur.

„Ég hef keppt á mjög stór­um mót­um. Það var eitt mjög stórt í Or­egon en ég hef ekki keppt fyr­ir ná­lægt því svona marga áður,“ sagði Erna við mbl.is.

Á meðal þeirra sem eru með Ernu í Par­ís er Vé­steinn Haf­steins­son ÍSÍ og fyrr­ver­andi kastþjálf­ari í fremstu röð í heim­in­um.

Erna Sóley Gunnarsdóttir.
Erna Sól­ey Gunn­ars­dótt­ir. Krist­inn Magnús­son

„Hann er bú­inn að vera frá­bær fyr­ir ÍSÍ og hann berst fyr­ir því að fá betri aðstæður fyr­ir íþrótta­fólk á Íslandi. Það er mik­ill meðbyr og við íþrótta­fólk erum mjög spennt fyr­ir stefn­unni sem er kom­in í gang.

Hann er ekki leng­ur kastþjálf­ari en kem­ur með frá­bær ráð, sem er ómiss­andi fyr­ir íþrótta­fólk,“ sagði Erna um Vé­stein.

mbl.is